Desember
Svona gæti þetta orðið, séð inn Skarðsdal
Svona gæti þetta orðið, séð inn Skarðsdal
Svona gæti þetta orðið, séð inn Skarðsdal

08.12.2003 Desember

Göngin í útboð

Vegagerðin hefur boðið út gerð jarðganga undir Almannaskarð ásamt vegskálum og vegagerð. Jarðgöngin verða tvíbreyð og 1.146 m. löng, vegskálarnir verða 162 m. og  vegagerð um 4,1 km. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2005. Verkkaupi ætlar að standa fyrir vettvangsskoðun og mun hún fara fram 8. janúar n.k. Það styttist því í að framkvæmdir hefjist við gangnagerðina og spennandi verður að aka undir en ekki yfir Almannaskarð.

Göngin koma til með að verða mikil og góð samgöngubót enda vegurinn yfir Almannaskarð brattur og oft erfiður að vetri til. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni sagði að veginum upp Skarðdalinn yrði haldið við og því gæti fólk áfram notið útsýnisins yfir Hornafjörð af Almannaskarði. Tilboðum í verkið á að skila til Vegagerðarinnar fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. janúar 2004 og verða þau opnuð sama dag kl. 14:15.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica