Desember
Heppuskóli
Heppuskóli

11.12.2003 Desember

Framhaldsnám í Heppuskóla

Nokkuð margir nemendur Heppuskóla eru í eða hafa lokið einingum 103 eða 203 á framhaldsskólastigi. Einn nemandi í 9. bekk Eik Aradóttir hefur tekið áfanga 103 í ensku og 103 frönsku og er núna í 203 í frönsku. Annar nemandi í 10. bekk Eva Ösp hefur tekið áfanga 103 og 203 í dönsku. Þá stunda þrír nemendur í 10. bekk, þau Gunnar Örn, Sólveig og Gísli nám í stærðfræði 103 og einnig Guðrún Fema, en hún er í 9. bekk. Töluverður fjöldi nemenda stundar einnig slíkt nám í þýsku. Þessu til viðbótar má nefna að nokkuð margir 9. bekkingar munu taka samræmd próf í vor og hefja áfanganám næsta vetur.

Framhaldsnám í Heppuskóla er eingöngu hægt vegna mjög góðs samstarfs við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu. Unnið er samkvæmt sérstökum samningi sem gerður hefur verið á milli skólanna. Skólarnir hafa unnið samkvæmt samningi þessum um nokkurn tíma og hefur samstarfið gengið afar vel og komið báðum skólunum að miklu gagni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica