Glæsileg veggspjöld
Nemendur Heppuskóla í 8. bekk hafa síðan um miðjan október unnið að verkefni í forvörnum í samstarfi við Æskulýðs-og tómstundaráð. Árni Pétur Hilmarsson kennari við skólann og Haukur Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi voru umsjónarmenn verkefnisins. Meðal þess sem nemendurnir fengust við var gerð veggspjalda og s.l. föstudag voru þrettán veggspjöld sýnd í skólanum og þrjú bestu veggspjöldin valinn að mati dómnefndar. Allir nemendur í 8. bekk fengu síðan viðurkenningu fyrir þátttöku í verkefninu. Greinilegt var að unglingarnir höfðu lagt mikla vinnu í verkefnið og báru veggspjöldin og slagorðin þess glöggt vitni. Glæsileg vinna krakkar, til hamingju.
Magnús J. Magnússon aðstoðarskólastjóri sagði að vonandi væri þetta bara fyrsta skrefið í samstarfi á milli þessara aðila. Þetta eru mál sem brenna alltaf á okkur og það er gott fyrir unglinginn að vinna að forvarnarverkefni á þann hátt sem hér hefur verið gert.





Skrifa athugasemd