Jólasveinar á ferðinni
Í dag komu þrír jólasveinar í óvænta heimsókn í bókasafnið. Svo heppilega vildi til að fjöldi barna var mættur í sögustund og voru þau býsna kát er sveinarnir birtust. Kertasníkir, Gluggagægir og Stekkjastaur spjölluðu við krakkana og svo var sungið og gengið í kringum jólatréð. Þeir félagar sögðust hafa verið mikið á ferðinni og haft meira en nóg að gera við að heimsækja börnin. Við ætlum svo að líta til ykkar Hornfirðinga á Þorláksmessu og vonandi hittum við mikið af börnum þá sögðu þeir bræður að lokum.
Veðurhorfur eru ekkert sérstakar fyrir Þorláksmessu, en þá er gert ráð fyrir suðvestan átt, rigningu og 6° hita. En veðurspár hafa nú stundum brugðist og við vonum að svo verði einnig með þessa jólaspá.





Skrifa athugasemd