Albert býður ungu fólki í Nýheima
Albert Eymundsson bæjarstjóri bauð ungmennum á Hornafirði sem eru á framhaldsskólaaldri til kynningarfundar í Nýheimum í dag. Rætt var um Frumkvöðlasetrið í Nýheimum og kynnti Ari Þorsteinsson framkvæmdastjóri starfsemina þar og þá möguleika sem þar væru fyrir hendi. Eyjólfur Guðmundsson skólameistari FAS kynnti hugmynd um frumkvöðlafræðslu og möguleika á fjarnámi gegnum framhaldsskólann. Gísli Sverrir Árnason forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar lýsti starfsemi menningarmiðstöðvarinnar, fjölbreyttri starfsemi hennar og þeim fjölmörgu verkefnum sem þar væru framundan.
Þetta er í annað sinn sem Albert heldur svona fund með ungum Hornfirðingum þar sem hann kynnir þeim og bendir á þá fjölmörgu möguleika sem eru til staðar í sveitarfélaginu.
Ég ræddi við þau um mikilvægi þess fyrir samfélagið hér á Hornafirði að unga fólkið komi heim og taki þátt í uppbyggingu í sveitarfélaginu og ég benti þeim á að við þyrftum á þeim að halda sagði Albert. Um þrjátíu manns komu á fundinn. Að loknum kynningum var boðið upp á hressingu og hljómsveitin Parket lék nokkur lög.





Skrifa athugasemd