Janúar

Þjónustubyggingin á tjaldstæðinu

Þjónustubygging á tjaldstæði til sölu - 30.01.2004 Janúar

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur sett þjónustubygginguna við tjaldstæði Hafnar á söluskrá. Óskað er eftir tilboðum í eignina fyrir kl. 14:00 þann 18. febrúar n.k. Umræður um sölu á eigninni hafa komið upp á borðið mörg undanfarin ár og er núna verið að stíga skrefið til fulls og kanna hvort áhugi sé fyrir kaupum á húsinu. Sá aðili sem kaupir húsið mun sjá um rekstur tjaldstæðisins. Lesa meira
 

Metvertíð hjá Skinney-Þinganes - 30.01.2004 Janúar

Heildaraflin hjá Skinney-Þinganes á síðustu síldarvertíð var tæp 20.000 tonn sem er mesti afli sem borist hefur til fyrirtækisins á einni vertíð. Mestur afli barst á land í nóvember, tæp 9.000 tonn og um miðjan desember voru komin á land rúm 18.000 tonn. Þrjú skip voru á síldveiðum, Ásgrímur Halldórsson sem bar á land 7.813 tonn, Jóna Eðvalds 7.284 tonn og Steinunn 4.835 tonn. Síldin sem veiddist var frekar smá og skyggir það aðeins á annars góða vertíð. Lesa meira
 
Jóna Eðvalds í heimahöfn

Bræla á loðnumiðunum - 29.01.2004 Janúar

Ásgrímur Halldórsson SF-250 er væntanlegur til Hornafjarðar með um 110 tonn af loðnu og Jóna Eðvalds SF-200 er sömuleiðis á heimleið með um 430 tonn. Bræla er á miðunum fyrir austan land en veðurspá gerir ráð fyrir NV 18-23 m/s og éljagangi eða snjókomu, en 13-18 m/s í fyrramálið og hægari síðdegis. Það sem af er vertíðinni hefur mestur loðnuafli borist til Neskaupstaðar en Eskifjörður fylgir fast á hæla þeirra. Lesa meira
 
Borgþór einbeittur á svip

Ágætt atvinnuástand - 29.01.2004 Janúar

Atvinnuástand á Hornafirði í upphafi nýs árs er mun betra en á sama tíma í fyrra ef mið er tekið af fjölda þeirra sem skráðir eru atvinnulausir hjá Vökli. Þorkell Kolbeins starfsmaður Vökuls stéttarfélags sagði að s.l. föstudag hefðu verið 30 einstaklingar skráðir atvinnulausir, á sama tíma í fyrra voru 55 á atvinnuleysisskrá. Það er því fækkun um 25 á milli ára. Atvinnuástandið er því þokkalegt og alltaf er eitthvað verið að auglýsa eftir fólki í vinnu sagði Þorkell. Lesa meira
 
Mistur yfir Hrossabitahaga (úr myndasafni)

Léttur reykur yfir Höfn - 28.01.2004 Janúar

Margir Hafnarbúar urðu varir við brunalykt fyrr í kvöld og lagði þykkan reyk yfir innbæinn. Að sögun Sigfúsar Más Þorsteinssonar vakthafandi lögregluþjóns þá var hér um að ræða sinubruna í eyju eða hólma rétt fyrir utan golfvöllinn. Nafn eyjunnar eða hólmans er talið vera Kapalhómi eða Telpnahöfði. Líklegast er að einhverjir krakkar hafi notað frostið og gengið á ís út í eyjuna eða hólmann og kveikt þar í. Samkvæmt lögum þá er bannað að kveikja opinn eld á víðavangi hvort sem það er sina eða varðeldur og þarf að sækja um leyfi til slíks til sýslumanns. Lesa meira
 
Dornierinn á Hornafjarðarflugvelli

Vél Íslandsflugs bilar í flugtaki - 28.01.2004 Janúar

Dornier flugvél Íslandsflugs sem var að fara frá Hornafirði til Reykjavíkur í morgun varð að snúa við þegar eldglæringar sáust standa aftur úr öðrum hreyfli hennar. Vélin var nýkomin í loftið og þá sáum við eldglæringar aftan úr öðrum hreyflinum sagði Sigurður Grétar Ragnarsson starfsmaður í flugturninum. Vélin missti aldrei afl á hreyflinum og tóku flugmennirnir einn hring og lentu vélinni aftur áfallalaust. Farþegar sem ætluðu með vélinni suður bíða nú eftir að Íslandsflug sendi aðra vél til Hornafjarðar. Lesa meira
 
Almannaskarð, ihorft frá vegi að norðan

Tilboð opnuð í jarðgöng undir Almannaskarð - 27.01.2004 Janúar

Í dag kl. 14:15 voru opnuð tilboð í jarðgangnagerð undir Almannaskarð. Lægsta tilboðið átti Héraðsverk ehf og Leonard Nielsen og sonur og hljóðaði það upp á kr. 779.225.191. Aðrir sem buðu í verkið voru Arnarfell ehf kr. 797.133.058, Ístak kr. 805.754.332, NCC-IAV kr. 959.072.127 og Jarðvélar ehf kr. 1.079.410.500. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 856.095.000. Jarðgöngin verða 1.146 m. löng, steinsteyptir vegskálar 162 m. og vegagerð um 4,1 km. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2005. Jarðgöngin munu leysa af hólmi erfiðan og hættulegan veg um Almannaskarð þar sem er um 16% halli sem er mesti bratti á Hringveginum. Lesa meira
 
Útskipun loðnuafurða í Langust

Útskipun á loðnuafurðum - 27.01.2004 Janúar

Jóna Eðvalds SF-200 kom til Hornafjarðar kl. 10:30 í morgun með um 450 tonn af ágætri loðnu. Ásgrímur Halldórsson SF-250 er á miðunum útaf austurlandi og er komin með um 400 tonn af loðnu. Slæmt veður hamlaði veiðum um helgina en í gær hófu skipin veiðar aftur eftir að veðrinu slotaði og voru þá stödd djúpt útaf Glettinganesi. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hafa borist um 25 þúsund tonn af loðnu á land frá áramótum. Lesa meira
 
Hornafjarðarmáninn við Hótel Höfn

Tilnefningar til menningarverðlauna - 27.01.2004 Fréttir

Á fundi Menningarmálanefndar miðvikudaginn 14. janúar s.l. voru lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2004. Eftirtaldir hlutu tilnefningar að þessu sinni: Leikhópurinn Lopi fyrir öflugt leiklistarstarf ungmenna Haukur H. Þorvaldsson fyrir áratuga starf að tónlistar- og menningarmálum Ungmennafélag Öræfinga/ritnefnd fyrir útgáfu Félagsvinarins Þorbjörg Arnórsdóttir fyrir vinnu við stofnun Þórbergsseturs Parket fyrir tónlitarstarf fyrir ungt fólk Aðstandendur sýningarinnar Með allt a hreinu fyrir metnaðarfulla skemmtidagskrá Lesa meira
 
Flott mynd í Óslandi

Bæjarráð úthlutar styrkjum - 26.01.2004 Fréttir

Á fundi Bæjarráðs þann 15. janúar s.l. var gengið frá úthlutun styrkja fyrir árið 2004. Eftirtaldir hlutu úthlutun að þessu sinni: Sóknarnefnd Kálfafellssóknar 50.000 kr. Björgunarfélag Hornafjarðar 200.000 kr. Búnaðarsamband A-Skaft. 50.000 kr. Félag Fuglaáhugamanna á Hornafirði 50.000 kr. Skógræktarfélag A-Skaft. 150.000 kr. Ferðafélag A-Skaft. 50.000 kr. Félag aldraðra 350.000 kr. Samtals 900.000 kr. Lesa meira
 
Höfn

Truflanir á GSM-sambandi Símans - 26.01.2004 Janúar

Truflanir hafa verið á GSM-sambandi í Sveitarfélaginu Hornafirði, Austur- og N-Austurlandi frá því í morgun. Að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans þá er verið að færa samböndin yfir á aðrar leiðir á meðan leitað er að orsök bilunarinnar. Bilunin hefur haft áhrif á GSM-stöðvar á Höfn, Brekku, Bakkafirði, Mývatni, Auðbjargarstöðum, Ásbyrgi og Grímsey. Lesa meira
 
Hringadóttinssaga, Return of The King

Mikil aðsókn á Hringadróttinssögu í Sindrabæ - 25.01.2004 Janúar

Eins og elstu menn muna þá var það á árum áður að bíóhúsin á landsbyggðinni þurftu að berjast um nýjustu kvikmyndirnar og á tímum Ragga Bjöss þá notaði hann árangursríka aðferð til að fá nýjustu myndirnar sem ávallt komu í Sindrabæ eftir að stóru bíóhúsin í Reykjavík hættu að sýna þær. Aðferðin hjá Ragga var að færa þeim sem réðu yfir myndunum humar og viti menn það virkaði mjög vel á forgangröðina. Lesa meira
 
Lúlli og Óli Einars sprækir í lauginni

Sundlaugin opnar á ný - 23.01.2004 Janúar

Fyrir okkur Hornfirðinga er það opnun sundlaugarinnar eftir áramótin sem vottur um betri tíð og hækkandi sól eins og lóan í hlutverki vorboðans. Sundlaugin opnar í dag kl. 16 eftir u.þ.b. mánaðar lokun, en á því tímabili var unnið að endurbótum á lauginni. Áður fyrr var lokun laugarinnar yfir kaldasta tímabilið allt að 3 mánuðir. Í fyrra var settur upp nýr 10-12 manna heitur pottur en fyrir voru tveir nuddpottar og krakkalaug. Lesa meira
 
Ingvi Sigurðsson færir Ásgrími Ingólfssyni skipstjóra tertu    (Mynd: Hermann Stefánsson)

Búið að landa 1150 tonnum af loðnu - 23.01.2004 Janúar

Ásgrímur Halldórsson landaði í gærkvöldi 450 tonnum að loðnu, sem er fyrsta loðnan á vetrarvertíðinni og í morgun landaði Jóna Eðvalds 700 tonnum. Af tilefni fyrstu loðnunnar á land færði Ingvi Sigurðsson frá Skinney-Þinganesi áhöfninni á Ágrími Halldórssyni rjómatertu. Gunnar Ásgeirsson segir að loðnan sé smá en mjög góð og átulaus og hentar því vel til frystingar fyrir Rússlandsmarkað. Unnið er á vöktum allan sólarhringinn í Skinney-Þinganesi. Lesa meira
 
Kátir krakkar í Hafnarskóla

Gefinn kostur á heitum mat - 23.01.2004 Janúar

Nemendum Hafnarskóla á Hornafirði hefur verið gefinn kostur á að fá sendan heita mat í skólann í vetur frá veitingahúsi á staðnum og kostar máltíðin 400 kr. Arnbjörg Stefánsdóttir segir að ekki hafi þessi tilraun gefist eins og vænst var því einungis fjórir af 164 nemendum skólans nýttu sér þessa þjónustu síðasta matartímabil, sem eru 6 vikur. Foreldrum finnst þetta of dýrt og kjósa frekar að nesta börn sín í skólann. Algengasta nestið eru samlokur, pizzur, núðlusúpur og sum koma með matarafganga, sem þau geta hitað upp. Lesa meira
 
Sævar og drengirnir í Hafnarskóla bjóða þorra velkominn

Þorri boðinn í garð í Hafnarskóla - 23.01.2004 Janúar

Í dag er Bóndadagur, fyrsti dagur þorra og þá munu hraustir drengir "bjóða þorra í garð" að gömlum sið og það gerðu drengirnir í Hafnarskóla í morgun þegar þeir hlupu í kringum skólann berfættir og í annarri skálminni. Það er gamall siður að á fyrsta degi þorra áttu bændur að bjóða þorra í garð eða fagna þorra með því að fara fyrstir á fætur. "Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa. Lesa meira
 
Kindur sóttar í afrétt á Breiðamerkurfjall og ferjaðar yfir Breiðá   (úr myndasafni)

Bænda innleiða gæðastýringu í sveitarfélaginu - 23.01.2004 Janúar

Um áramótin tóku gildi ný lög um gæðastýringu í sauðfjárbúskap. Gunnar Guðmundsson hjá Bændasamtökum Íslands segir að gæðastýring gangi meðal annars út á að skrá það sem gert er á framleiðsluferlinu og meta síðan eftir árið hvað gekk vel og hvað má betur fara, hvað gekk illa og hvað þarf að laga. Gæðastýring hefur í sér tvo megin þætti þ.e. að bæta rekstur bónda og afkomu og til að auka, tryggja og styrkja gæði á framleiðslu vörunnar. Allt fullorðið fé á að vera númerað og auðkennt og lömbin þarf að merkja. Lesa meira
 
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Góðir styrkir til FAS - 22.01.2004 Janúar

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hefur fengið styrk að upphæð 2.000.000.- króna úr sjóði sem ætlaður er til að efla starfsmenntun á landsbyggðinni. Sótt var um styrki til að gera námsefni í 30 rúmlesta réttindanám dreifkennsluhæft og til að þýða og staðfæra námsefni í frumkvöðlafræði frá NFTE í Bandaríkjunum. Styrkurinn er góð viðurkenning fyrir skólann og vonandi eiga fleiri álíka verkefni eftir að reka á fjörur okkar Hornfirðinga. Lesa meira
 
Nemendur í kaffiteríu FAS

Gettu betur í Nýheimum - 21.01.2004 Janúar

Á föstudaginn kl 20:30 mun Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu etja kappi við Menntaskólann í Kópavogi í spurningakeppni framhaldsskólanna “Gettu betur” Lið FAS skipa þeir Sigurður Óskar Jónsson, Finnur Smári Torfason og Eysteinn Sindri Elvarsson. Miklar æfingar hafa staðið yfir undanfarið hjá þeim félögum enda erfið rimma framundan. Liðsstjóri keppnisliðs FAS er Guðný Svavarsdóttir bókavörður hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Lesa meira
 
Ólafur í leik með Magdeburg

Ólafur Stefánsson hóf ferilinn hjá Sindra - 21.01.2004 Janúar

Lengi býr að fyrstu gerð. Einn albesti handknattleiksmaður heims, Ólafur Stefánsson sem nú gerir garðinn frægan úti í hinum stóra heimi, hóf sinn boltaferil hjá Sindra á Hornafirði. Reyndar hóf Ólafur ferilinn í knattspyrnu, enda um fátt annað að velja á Hornafirði á þeim tíma. Ellefu ára gamall hóf hann síðan að æfa handbolta og þá var ekki aftur snúið. Í stuttu spjalli sagði móðir Ólafs, Helga Lilja Björnsdóttir að hún hefði komið á Hornafjörð og opnað verslunina Blómaland ásamt Rannveigu Einarsdóttir. Við dvöldum á Hornafirði eitt sumar og það var yndislegur tími. Óli var í fótbolta með félögunum alla daga og hann var óskaplega stoltur þegar hann fékk fyrsta Sindrabúninginn sinn sagði Helga. Lesa meira
 
Kiwanisklúbburinn á Hornafirði

Lífs-vísir, Vörn gegn sjálfsvígum - 20.01.2004 Janúar

Kiwanismenn á Hornafirði hafa nú blásið til fundar í næstu viku um verkefni sem þeir kalla KiwanisLífs sem er útgáfa og dreifing bókamerkja “Lífs-vísir, Vörn gegn sjálfsvígum”en það verkefni byrjaði sem samstarfsverkefni Kiwanisklúbba á Suðurnesjum þar sem séra Ólafur Oddur Jónsson gerði sjálfsvíg að umtalsefni á eftirminnilegan hátt í Keflavíkurkirkju. Í framhaldi af því ákváðu kiwanismenn að vinna að verkefninu í samráði við fagaðila þar sem málið væri vandmeðfarið. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF-250

Loðnuveiðar hefjast - 20.01.2004 Janúar

Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi bann við loðnuveiðum og eru loðnuskipin nú að búa sig til veiða og munu mörg þeirra halda úr höfn í dag. Hjá Skinney-Þinganes fengust þær upplýsingar að bæði Ásgrímur Halldórsson SF-250 og Jóna Eðvalds SF-200 muni halda á miðin um miðjan dag í dag en um sólarhrings sigling er á miðin. Töluverð óánægja hefur verið með bannið hjá sjómönnum enda telja þeir að nóg sé af loðnu á miðunum. En heldur ættu menn að kætast við þessar fréttir og vonandi koma skipin fljótt til hafnar drekkhlaðin af loðnu. Lesa meira
 
Frábært dómaratríó!

Hreyfing á leikmönnum hjá Sindra - 20.01.2004 Janúar

Tveir uppaldir Sindramenn hafa tilkynnt félagaskipti úr Sindra í janúar. Halldór Steinar Kristjánsson sem hefur spilað yfir 100 leiki fyrir mfl. Sindra er gengin til liðs við ÍR og Jón Haukur Haraldsson sem kosin var efnilegasti leikmaður Sindra á sl.tímabili hefur skipt yfir í Val. Aðrir leikmenn mfl. karla sem skipt hafa úr Sindra eru Heiðar Ingi Aðalgeirsson sem kom til Sindra frá Grindavík og skipti aftur yfir í sitt gamla félag og markmaðurinn Kjartan Páll Þórarinsson sem kom frá KA, skipti yfir í ÍR. Hjá Sindraskvísum hefur Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir flutt sig um set, en hún tilkynnti félagaskipti í Stjörnuna í október. Lesa meira
 
Hressir strákar í íshokki (mynd:Ari Þorsteinsson)

Hart barist á Óslandstjörn - 19.01.2004 Janúar

Mikið fjör var á tjörninni í Óslandi í gær þegar magnaður íshokkileikur fór fram, sá fyrsti í sögu Hafnar sem vitað er um. Á tjörnina voru mættir 14 strákar, klárir í slaginn og var ekkert gefið eftir og stemningin gríðarleg. Ari Þorsteinsson ásamt syni sínum Ásgrími höfðu veg og vanda af þessum kappleik. En Ásgrímur æfði íshokki þegar fjölskyldan bjó í Kanada. Hart er tekist á og mikil barátta er í íshokki og því mikilvægt að menn búi sig sem best og séu í viðeigandi hlífðarfatnaði. Lesa meira
 
Krapi, snjór og hálka

Unnið að hreinsun vega - 19.01.2004 Janúar

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er krapi og snjór á vegum að Vík í Mýrdal og unnið að hreinsun vega. Þæfingsfærð er á Breiðamerkursandi. Fyrir vestan Vík er tekur síðan við hálka og hálkublettir allt til Reykjavíkur. Sama er upp á teningnum ef halda skal í austur, þar er snjór yfir öllum vegum en unnið er að hreinsun. Snjókoma er á fjörðunum fyrir austan Berufjörð. Lesa meira
 
Brynjar og Elsa í Heitt & Kalt

Heitt og Kalt í Reykjavík - 16.01.2004 Janúar

Þeir eru orðnir nokkrir Hornfirðingarnir sem hafa haslað sér völl í matargerðinni á höfuðborgarsvæðinu við góðan orðstír. Brynjar Eymundsson er einn þeirra en hann rak lengi fyrirtækið Veislan ehf sem hann er búinn að selja og í október 2002 opnaði hann og fjölskylda hans nýjan matsölustað ,,Heitt og Kalt” við Grennsásveg í Reykjavík þar sem vinna 10 manns og pláss fyrir 100 gesti. Brynjar segir að samkeppnin sé orðin mjög hörð, mikil læti og hasar kring um þetta allt og þetta 108 hverfi sé mikið vaxandi. Við verðum vör við að það eru opnaður nýr veitingastaður hér á 108 svæðinu í hverjum mánuði og stundum oftar. Lesa meira
 
Tilbúin til veiða

Síldveiðar hefjast á ný - 15.01.2004 Janúar

Síldarvertíð sem átti að ljúka í síðustu viku hjá Skinney-Þinganes er hafin aftur. Skip fyrirtækisins áttu að hefja loðnuveiðar næstu daga en í ljósi banns við loðnuveiðum var ákveðið að Jóna Eðvalds SF-200 og Ásgrímur Halldórsson SF-250 héldu aftur til síldveiða, en fyrirtækið á enn þá óveidd rúm 200 tonn af úthlutun yfirstandandi fiskveiðiárs. Á síldarvertíðinni hefur mestum afla verið landað hjá Skinney-Þinganes eða rúmlega 19 þúsund tonnum. Lesa meira
 
Frá námskeiði fiskvinnslufólks

Námskeið fyrir fiskvinnslufólk - 15.01.2004 Janúar

Þessa viku stendur yfir 40 stunda fiskvinnslunámskeið í húsi Vökuls stéttarfélags á Hornafirði. Sjávarútvegsráðuneytið hefur veg og vanda af námskeiðinu og er tilgangur þess að gera þátttakendur að sérhæfðum fiskvinnslumönnum og fylgir því launahækkun um tvo launaflokka. Nítján þátttakendur eru á námskeiðinu, 14 frá Skinney-Þinganes og 5 frá Bestfisk. Í þessum hóp eru 5 pólverjar og er allt námsefnið jafnóðum túlkað yfir á pólsku fyrir þá. Lesa meira
 
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (úr myndasafni)

Heildaryfirsýn skiptir máli - 14.01.2004 Janúar

Vatnajökuls-þjóðgarðsmál hafa nokkuð verið til umræðu þessa dagana og í framhaldi af birtingu ályktunar sem Öræfingar sendu til Umhverfisráðherra var leitað til Halldóru B. Jónsdóttur formanns bæjarráðs til að fá skoðun hennar á málinu og framkvæmd þess. Var það auðsótt mál. Halldóra segir að nefnd um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sé búin að vera starfandi frá því í fyrravetur, hefur hún haldið nokkra fundi og er að vinna drög að reglugerð fyrir væntanlegan þjóðgarð. Lesa meira
 
Sjónhorn

Höfðingleg gjöf til Umf. Sindra frá Sparisjóðinum - 14.01.2004 Janúar

Í dag verður undirritaður samningur milli Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrenis og Ungmennafélagsins Sindra þar sem Sparisjóðurinn færir ungmennafélaginu Sjónhorn ehf að gjöf. Innifalið í gjöfinni er styrkur Sparisjóðs Hornafjarðar til Umf. Sindra næstu fimm árin. Óhætt er að segja að þetta sé höfðingleg gjöf frá sparisjóðnum og jafnframt spennandi verkefni sem bíður ungmennafélagsins. Sjónhorn á og rekur kapalkerfið og færist sá rekstur því yfir til Umf. Sindra frá og með deginum í dag en samningurinn gildir frá 1. janúar 2004. Lesa meira
 
Vestragil, Gamla rafstöðin í Skaftafelli

Ályktun um að aðalstöðvar þjóðgarðsins verði í Skaftafelli - 14.01.2004 Janúar

Í nóvember sl. var haldinn í Reykjavík fundur í Vatnajökuls-nefnd þar sem mættir voru fulltrúar þeirra sjö sveitarfélaga sem eiga land að jöklinum. Í skýrslu formanns Vatnajökulsnefndar, Árna Bragasonar forstöðumanns hjá Umhverfisráðuneytinu, voru drög að samkomulagi um að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verði í Skaftafelli. Sveitarfélagið Hornafjörður var eina sveitarfélagið sem ekki var sátt við þá tillögu og kom tillaga frá fulltrúa um að höfuðstöðvar hans yrðu á Höfn. Öræfingar eru ekki samþykkir þessari tillögu og var samþykkt að senda Umhverfisráðherra ályktun um að aðalstöðvar þjóðgarðsins yrðu í Skaftafelli og undir ályktunina skrifuðu flest allir íbúar Öræfasveitar. Lesa meira
 
Séð frá Leiðarhöfða

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar - 13.01.2004 Fréttir

Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2004 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi 19. desember s.l. Heildarvelta sveitarfélagsins og fyrirtækja þess er áætluð um 1,5 miljarður árið 2004. Lang stærsti málaflokkurinn eru fræðslumál og tekur hann til sín 58% af skatttekjum sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að skuldir lækki um 15 mkr. á árinu. Áætlað er að framkvæmdir við fyrsta áfanga í fráveitumálum hefjist á árinu og verður til þeirrar framkvæmdar varið 37,5 mkr. en heildarkostnaðurinn er áætlaður 200 mkr. Helst verkefni hafnarsjóðs verða endurbygging Krosseyjarbakka og dýpkun á Grynnslunum. Lesa meira
 
Séð heim að Skálafellsbæjum í Suðursveit

Girðingastaurar úr trolli á Skálafelli - 13.01.2004 Janúar

Ekki hefur það verið talið til tíðinda að bændur girði á jörðum sínum, en þegar koma nýjungar í þessum málum sem bæði eru hagkvæmari og umhverfisvænar er það athyglisvert. Nýlega var sett fimm strengja rafmagnsgirðing um landssvæði á Skálafelli í Suðursveit þar sem Ingibjörg Ragnarsdóttir er með nytjaskógrækt. Þetta er ekki sambærilegt, að girða með svona rafmagnsgirðingu eða gaddavírsgirðingu sagði Torfi Friðfinnsson eiginmaður Ingibjargar. Lesa meira
 
Ásgrími Halldórsson SF-250 við Krosseyjarbakka

Síldarvertíð lokið hjá Skinney-Þinganes - 12.01.2004 Janúar

Ásgrímur Halldórsson SF-250 er að landa 400 tonnum af síld hjá Skinney-Þinganes og Jóna Eðvalds SF-200 er væntanleg með 200 tonn í kvöld. Þetta eru síðustu síldarfarmarnir á þessari vertíð enda síldarkvóti fyrirtækisins nánast búin. Undanfarin ár hefur ekki tekist að veiða allan síldarkvótann og eru menn því mjög ánægðir með veiðina á þessari vertíð. Heildarsíldarafli hjá Skinney-Þinganes á vertíðin er rúm 19 þúsund tonn og hefur aflin aldrei verið meiri. Lesa meira
 
Jarðboranir að störfum við Hoffell

Borað niður á öfluga vatnsæð við Hoffell - 12.01.2004 Janúar

Borun eftir heitu vatni við Hoffell lofar mjög góðu og verður alltaf jákvæðara og jákvæðara eftir því sem verkinu miðar áfram segir Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur. Staðan í dag er þannig að hola 84, sem virðist vera heitasta holan á svæðinu, er orðin 285 metra djúp, en á um 180 m dýpi opnaðist í henni öflug vatnsæð með 37° heitu vatni. Stefnt er á að bora þessa holu niður á 300 metra dýpi, en á 250 metra dýpi er áætlað að hitastigið verði um 50°. Lesa meira
 
Hljómsveit BSG á Þorrablóti

Hljómsveit BSG á Þorrablótinu á Höfn - 10.01.2004 Fréttir Þorrablót

Búist er við miklu stuði á þorrablótinu á Höfn því danstónlistin verður undir stjórn Hljómsveitar BGS en í henni eru Björgvin Halldórsson sem hefur um árabil verið einn vinsælasti söngvari þjóðarinnar, Sigríður Beinteinsdóttir sem er ein besta sönkona íslendinga og feðgarnir Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson, Grétar er einn þekktasti hljómsveitastjóri landsins og forsprakki Lesa meira
 
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

Drekinn kom að góðum notum í hvassviðrinu - 09.01.2004 Janúar

Mikið hvassviðri var í Öræfum á miðvikudag og sýndi vindmælirinn í Sandfelli 46 metra og á Fagurhólsmýri 30 í mestu kviðunum. Sorphirðubíll sem var skammt frá sundlauginni fullur af sorpi fauk á hliðina og um 600 kg. heyrúlla fauk á stað og fór gegnum eina girðingu áður en hún stansaði. Ólafur Sigurðsson á Svínafelli sagði að bíllinn hefði lítið skemmst við veltuna, hliðarrúða hefði brotnað og nokkrar rispur komið á bílinn. Lesa meira
 
Veiðafæragerðin

Eigendaskipti á Veiðarfæragerð Hornafjarðar - 08.01.2004 Janúar

Þann 22. desember s.l. tókust samningar á milli hluthafa í Veiðarfæragerð Hornafjarðar og stjórnenda Ísfells að hinn síðarnefndi kaupi allt hlutafé félagsins. Nokkuð stór hluthafahópur hefur verið um félagið síðustu ár og er þetta í fyrsta sinn sem félagið verður í eigu eins aðila. Veiðarfæragerð Hornafjarðar var stofnuð árið 1972 af þeim Hauki Þorvaldssyni og Kristjáni Gústafssyni og rekið í eigu þeirra allt til ársins 1988 þegar nýr hluthafahópur koma að félaginu. Lesa meira
 
Hálka og hvassviðri

Óveður á landinu - 07.01.2004 Janúar

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ekkert ferðaveður þessa stundina í nágrenni Hafnar og má segja að leiðin til Reykjavíkur sé ófær vegna mikils hvassviðris og hálku. Í Öræfum var ANA 19 m/s og fór upp í 37 m/s í vindhviðum kl. 15:00. Hált er austur um frá Höfn að Hvalnesi en þar var vindhraðinn um 15 m/s. Fyrir austan Hvalnes eru hálkublettir. Veðurstofan gerir ráð fyrir að veðrið gangi niður með kvöldinu og hljóðar spáin upp á austan 8 – 13 m/s og skúrir. Hiti 3 – 8 stig. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF í höfn

Fyrsta síldin á nýju ári - 07.01.2004 Janúar

Fyrsta síldin á nýju ári barst til Hornafjarðar í dag þegar Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom með 240 tonn af blandaðri síld sem fékkst í Hornafjarðardýpi í tveimur köstum. Skipverjar á Ásgrími fengu óvænta samkeppni á miðunum þegar hnúfubakur skellti sér undir og inn í nótina og reif hana töluvert. Jóna Eðvalds SF-200 er væntanleg til Hornafjarðar í kvöld með 130 – 140 tonn af síld sem veiddust fyrir vestan land. Lesa meira
 
Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir með Unnar Freyr (úr myndasafni)

29 Hornfirðingar komu í heiminn á árinu - 07.01.2004 Janúar

Á árinu 2003 voru 28 fæðingar og börnin 29 þ.e einir tvíburar sagði Áslaug Valsdóttir ljósmóðir á Hornafirði. Flestar konurnar fæddu í Reykjavík og á Selfossi þó mjög góð fæðingaraðstaða sé á Höfn. Áslaug sagði að það séu ýmsar ástæður fyrir því að konur fæði ekki hér heima svo sem heilsufarsástæður og einnig oft persónulegar ástæður. Af þessum börnum ársins voru stúlkurnar í meirihluta. Stærsta barnið var rúmar 17 merkur og 57 cm. en minnsta var 11 merkur. Tvíburarnir voru 14 og 16 merkur og segir Áslaug það vera fremur óvenjulegt að tvíburar séu svo stórir. Lesa meira
 
Þrettándabrennan við Stekkhól, Meðalfell í bakgrunn

Þrettándabrenna - 06.01.2004 Janúar

Hin árlega þrettándabrenna Ungmennafélagsins Mána verður haldin inn við Stekkhól í Nesjum kl. 20:00 í kvöld. Mörg undan farin ár hefur UMF Máni staðið fyrir brennu á þrettándanum og hafa margir lagt leið sína inn að Stekkhól til að njóta brennunnar og hitta mann og annan. Veðurspáin gerir ráð fyrir hæglætisveðri í kvöld og gera því veðurguðirnir sitt besta til að allir geti notið brennunnar í björtu og stilltu veðri. Fólki skal bent á að notkun skotelda er bönnuð við brennuna. Lesa meira
 
Frá brunanum í Akurey (úr myndasafni)

Sex sinnum útköll á árinu 2003 - 06.01.2004 Janúar

Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út sex sinnum á árinu 2003 þar af voru tvö útköll vegna alvarlegra umferðaslysa þar sem nota þurfti björgunarklippur. Eitt útkallið var vegna elds í Akurey SF, tvö vegna sinubruna og vegna elds í eldhúsi Hótel Hafnar. Engin útköll hafa orðið um hátíðarnar og sýnist sem Hornfirðingar séu farnir að gæta sinna jólaskreytinga betur með hverju árinu sem líður. Lesa meira
 
Kyrrð og ró við höfnina

Aðalfundur sjómannadeildar Vökuls - 04.01.2004 Janúar

Sjómannadeild Vökuls hélt aðalfund sinn þann 29. desember s.l. Aðalmál fundarins voru kjaramál og kosning stjórnar. Á fundinum var m.a. fjallað um frumvarp fjármálaráðherra um niðurfellingu sjómannaafsláttar og sendi fundurinn frá sér eftirfarandi ályktun: “Aðalfundur sjómannadeildar Vökuls Stéttarfélags mótmælir harðlega framkomnu frumvarpi fjármálaráðherra um niðurfellingu sjómannaafsláttar. Í athugasemdum með frumvarpinu kemur fram að eðlilegt sé að sjómenn semji um sín kjör í samningum. Lesa meira
 
Heiðursgestirnir Stefanía og Gunnar

Gunnar og Stefanía heiðursgestir. - 03.01.2004 Fréttir Þorrablót

Fastur liður í undirbúningi að þorrablóti Hornafirðinga í Reykjavík er að bjóða virtum Hornfirðingum á blótið og að þessu sinni eru heiðursgestirnir hjónin Gunnar Sighvatsson og Stefanía Jónsdóttir sem heiðra þorrablótsgesti með nærveru sinni. Gunnar er þekktur meðal Hornfirðinga, sem einn af Brekku systkinunum, rafvirkjameistari til fjölda ára og síðast en ekki síst sem mikill hestamaður. Lesa meira
 
Þátttakendur í áramótagolfmóti GHH

Hraustmenni í áramótagolfmóti - 02.01.2004 Janúar

Um hver áramót heldur Golfklúbbur Hornafjarðar golfmót sem fram fer að morgni gamlársdags og að þessu sinni við frekar napurlegar aðstæður en kylfingarnir 6 sem kepptu þeir Baddi, Vífill, Stebbi, Jón Axelss, Jóhannes Gests og Siggi Magg eru þekkt hraustmenni létu kuldinn og vindinn ekki á sig fá og stóðu sig frábærlega. Leikið var með þeim hætti að tveir léku saman og slógu til skiptis. Lesa meira
 
Áramótabrennan 2003-2004

Vel heppnuð áramót á Hornafirði - 01.01.2004 Janúar

Áramótabrennunni sem frestað var á gamlárskvöld vegna roks fór fram í dag kl.17 og var mikið fjölmenni mætt við brennuna sem var hin besti hitagjafi á meðan á henni stóð því frost var um 5 gráður og því beit aðeins í kinnar. Björgunarfélag Hornafjarða var með flugeldasýningu á staðnum og tókst hún með glæsibrag eins og endra nær. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica