Sérútbúin gistiaðstaða fyrir fatlaða
Ferðaþjónustuaðilar í Austur Skaftafellssýslu hafa nóg að gera við undirbúning fyrir sumarið og allt bendir til þess að þetta verði gott ferða-sumar. Hjá ferðaþjónustunni í Arbæ á Mýrum hefur verið lögð áhersla á góða aðstöðu fyrir fatlaða og að þeir fái sem besta þjónustu. Unnið er núna að viðbyggingu við borðsal þar sem verður betra aðgengi, rúmgott andyri og einnig kemur þar góð snyrtiaðstaða sérútbúin fyrir fatlaða. Við leggjum áherslu á að geta tekið vel á móti þeim sem eru fatlaðir og erum með eitt herbergi sérútbúið og eins geta þeir notað hin herbergin sem hér eru þó þau séu ekki með sér búnaði segir Sigurlaug Gissurardóttir ferðaþjónustubóndi.
Ferðaþjónustan í Árbæ opnar í maí og að sögn Sigurlaugar lítur mjög vel út með ferðaþjónustu í sumar.Það er meira um fyrirspurnir og fleiri pantanir en var í fyrra og nær yfir lengri tíma. Nafnbókanir eru mikið fleiri og allt eru þetta útlendingar segir Sigurlaug.





Skrifa athugasemd