Góð þátttaka í vetrarmóti Hornfirðings
Vetrarmót Hornfirðings var haldið um helgina. Þar var keppt í tölti í barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Góð þátttaka var í mótinu sem fram fór á ís á Rotunum við félagsvæði Hornfirðings í blíðskaparveðri. Helstu úrslit urðu þau að í barnaflokki sigraði Ellert Máni Eyjólfsson í öðru sæti varð Selma Jónsdóttir og í þriðja sæti var Bjarney Unnsteinsdóttir. Í flokki unglinga sigraði Ríkey Kjartansdóttir en hún var eini unglingurinn sem þreytti keppni. Í kvennaflokki sigraði Hanny Heiler, í öðru sæti varð Harpa Baldursdóttir og í þriðja sæti varð Lena Hrönn Marteinsdóttir. Í karlaflokki sigraði kaupfélagstjórinn Pálmi Guðmundsson á Baun, í öðru sæti varð Ágúst Ólafsson á Fálka og í þriðja sæti varð Daninn, Martin Elíasson á Orku frá Bjarnanesi.
Til fróðleiks má geta þess að báðir hestarnir sem urðu í 1. og 2. sæti í karlaflokki eru í eigu Pálma Guðmundssonar. Gaman var að sjá hversu góð þátttaka og áhugi var fyrir móti sem þessu bæði hjá hestamönnum og áhorfendum og hyggst hestamannfélagið halda annað mót líkt þessu eftir um það bil mánaðartíma.





Skrifa athugasemd