Mars
Landað úr Skinney í dag
Landað úr Skinney í dag

02.03.2004 Mars

Stormviðvörun á landinu

Veðurstofan gerir ráð fyrir mjög slæmu veðri á landinu fram á morgundaginn og má búast við meira en 20 m/s víða um land. Veðurspáin fyrir suðausturland gerir ráð fyrir suðaustan 13-18 m/s og rigning, en 18-23 vestantil. Dregur úr vindi í nótt, sunnan og suðvestan 10-15 m/s og skúrir á morgun, en hægari síðdegis. Hiti 5 til 8 stig. Á sjálfvirku veðurathugunarstöðinni í Hvanney var vindhraði 10 m/s kl. 13:00 og loftþrýstingur 1001,2 hPa og fallandi. Sjóveðurspáin gerir ráð fyrir SA 13-25 m/s og rigningu í fyrstu, en SV 8-13 m/s og skúrir á morgun.

Samkvæmt korti Vegagerðarinnar var vindhraði í Öræfasveit 13 m/s en fór upp í rúma 20 m/s í hviðum og við Hvalnes var vindhraðinn um 10 m/s og fór í 14 m/s í hviðum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica