Mars
Leikmynd gerð klár
Leikmynd gerð klár

03.03.2004 Mars

Stór helgi framundan

Um komandi helgi verður mikið um að vera í listalífinu á Hornafirði. Tvö leikrit verða frumsýnd og á Hótel Höfn verður tekið aftur til við að sýna “Með allt á hreinu”. Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir leikritið “Bar Par” eftir Jim Cartwright í Mánagarði kl. 20:30 á föstudagskvöld í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar. Í leikritinu er litið inn á bar og skyggnst inn í líf bar hjónanna og fastagestanna, sem eru ansi skrautlegir svo ekki sé meira sagt. Á sunnudaginn kl. 14:00 frumsýnir síðan leikhópurinn Lopi barnaleikritið “Allt í plati” eftir Þröst Guðbjarnarson í leikstjórn Magnúsar J. Magnússonar. Í því verki bregður fyrir mörgum ævintýrapersónum m.a. sjáum við Línu Langsokk, Mikka ref, Lilla klifurmús og Karíus og Baktus.

Á laugardagskvöld verður síðan tónlistar- og matarveisla á Hótel Höfn. Hornfirska skemmtifélagið mun þá taka aftur til við að sýna “Með allt á hreinu” sem er mögnuð tónlistardagskrá þar sem andi Stuðmanna svífur yfir vötnunum. Leikstjóri sýningarinnar er Kristín G. Gestsdóttir og tónlistarstjórn er í höndum Heiðars Sigurðssonar. Sýningin “Með allt á hreinu” verður síðan sýnd á Broadway 19. mars n.k.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica