Mars
Veðurblíða á Hornafirði í dag
Veðurblíða á Hornafirði í dag

05.03.2004 Mars

Af samningamálum

Samninganefnd Vökuls kom saman í vikunni og ræddi stöðuna í samningamálum. Eftir fundinn sendi nefndin frá sér eftirfarandi ályktanir:
Ályktun.
Samninganefnd Vökuls Stéttarfélags er farið að lengja eftir því að gengið verði frá endurnýjun kjarasamninga milli SGS og SA annars vegar og SGS og Ríkisins hins vegar. Samningar hafa verið lausir síðan um áramót og viðræður dregist á langinn. Kröfur SGS eru hógværar og skorar samninganefnd Vökuls á samninganefnd SGS að hvika hvergi frá upphaflegum launakröfum. Þá krefst samninganefndin jöfnunar lífeyrisréttar landsmanna. Takist ekki samningar á næstu dögum hvetur samninganefndin til þess að gripið til verkfallsaðgerða til að skapa þrýsting.

Ályktun. Samninganefnd Vökuls Stéttarfélags vill beina því til samningarnefndar SSÍ og LÍÚ að setja kraft í samningsgerðina. Samningarnir hafa verið lausir síðan um áramót og tímabært að ljúka þeim. Vill samninganefndin minna á að síðastliðinn áratug hafa sjómenn verið samningslausir mánuðum saman og tímabært er að taka upp önnur vinnubrögð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica