Nýr hraðfiskibátur í flota Hornfirðinga
Nýr bátur, Silfurnes SF 99 hefur bæst í smábátaflota Hornfirðinga. Silfurnesið er hraðfiskibátur, Sómi 960 smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar með tækjabúnað frá Radíómiðun. Báturinn er með 480 hestafla vél og búinn öllum hugsanlegum siglingartækjum og búnaði ásamt GPS kompás sem tryggir það að hann helst miklu betur á sjálfstýringu.
Eigandi bátsins, Grétar Vilbergsson er að vonum afskaplega ánægður með bátinn og vonast til að komast á veiðar fljótlega, en eftir er að ljúka skráningu og fleiru sem koma þarf í gegnum kerfið. Silfurnesið fór vel með sig á 33 mílna hraða í prufukeyrslunni hér innan fjarðar, báturinn á að ganga yfir 20 mílur með fjögur tonn innanborðs. “Þetta er hraðfiskibátur sem á að skila mér í land á stuttum tíma með mikinn afla”sagði Grétar. Hann verður einn á bátnum og er með veiðiheimild á rúm 40 tonn af aðgerðum fiski.





Skrifa athugasemd