Mars
Brunaútkall að Reyðará í Lóni
Slökkvilið Hornafjarðar var kallað út í dag um kl.17.30 vegna elds í íbúðarhúsinu á Reyðará í Lóni. Slökkviliðið var komið á staðinn 38 mínútum eftir útkall og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri segir að kviknað hafi í út frá kamínu sem var í viðbyggingu við gamla íbúðahúsið og þar var mestur eldur í millilofti svo að rífa þurfti þakjárnið af til að komast að eldinum. Sjúkrabíll var einnig kallaður út til öryggis en sem betur fer slasaðist enginn. Töluverðar skemmdir urðu á stofu og þaki viðbyggingarinnar.
Slökkviliðið var með vakt við húsið fram eftir kvöldi.





Skrifa athugasemd