Taka tvö á strandstað
Einar Björn Einarsson okkar maður frá Hornafirði sem er á hjólaskipi sínu á strandstaðnum í Meðallandsfjöru er núna að undirbúa að fara með línu úr landi út í dráttarbátinn. ”Þetta er bara taka tvö” sagði Einar Björn þegar við hringdum í hann um hádegið. Við erum á förum með línuna út í dráttarbátinn, þetta eru um tveir km. út í bátinn. Það er svona þokkalegt í sjóinn nema við landið þar er hálf leiðinlegt.
Þetta er fyrsta ferðin sem Einar Björn fer út á hjólaskipinu síðan hann kom á strandstaðinn. Einar segir að skipið hafi snúist á strandstað en það ætti ekki að verða erfitt að snúa því aftur áður en önnur tilraun verður gerð til að draga skipið sem stefnt er að gera á morgun.
Einar Björn er vongóður um að takist að koma fjölveiðiskipinu Baldvin Þorsteinssyni á flot.





Skrifa athugasemd