Mars
Dansað í Nesjaskóla á Öskudaginn
Dansað í Nesjaskóla á Öskudaginn
Dansað í Nesjaskóla á Öskudaginn (úr myndasafni)

22.03.2004 Mars

Dans í Nesjaskóla

Undanfarin ár hefur dans verið kenndur í íþróttatímum Nesjaskóla og hafa krakkarnir haft mjög gaman af þeim tímum. En núna stendur meira til í skólanum til að efla dansáhugann enn frekar. Dagana 29. mars til 2. apríl mun Jón Pétur Úlfarsson danskennari hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru mæta og kenna dans í skólanum. Kennslan er fyrir alla nemendur skólans og fer fram á skólatíma. Krakkarnir munu fá einn tíma á dag og stefnt er að því að bjóða foreldrum í heimsókn í skólann föstudaginn 2. apríl til að líta á árangurinn. Ekki er nokkur vafi á að börnin muni hafa bæði gagn og gaman af þessari heimsókn enda dansinn líkamstjáningarform sem börnum er mjög eðlilegt að tjá sig með.

Til að nýta þessu góðu heimsókn frá dansskólanum mun Dansklúbburinn Taktur bjóða upp á dansnámskeið fyrir krakka í 4. – 10. bekk og kvöldnámskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica