Mars
Fjölskyldan saman, gaman
Fjölskyldan saman, gaman

23.03.2004 Mars

Fjölskyldan saman, gaman

Síðastliðin vetur tóku margar Hornfirskar fjölskyldur þátt í verkefninu “Fjölskyldan saman, gaman!” Það verkefni var m.a. hugsað til að auka tækifæri fjölskyldunnar til heilsueflandi samverustunda. Þátttaka fjölskyldufólks var mjög góð og í skoðanakönnun sem gerð var í tengslum við verkefnið kom fram mikil ánægja með framtakið og sterkur vilji til áframhaldandi vinnu í svipuðum dúr. Átti það bæði við um þátttakendur og aðila sem starfa við æskulýðs- og íþróttamál.

Næstu þrjá mánuði er fyrirhugað að stuðla að einni uppákomu í mánuði á vegum “Fjölskyldan saman, gaman!” og verður byrjað í íþróttahúsunum. Flestir þjálfarar yngri barnanna hafa þegar sent út boðsmiða til foreldra þar sem þeim er boðið til þátttöku á einni æfingu núna í vikunni 22. – 28. mars. Þær konur sem æfa blak hjá Sindra og e.t.v. fleiri fullorðnir iðkendur, munu bjóða börnum sínum á eina æfingu hjá sér.
Það er ósk umsjónaraðila verkefnisins, Huldu Laxdal Hauksdóttur að foreldrar verði eins duglegir og í fyrra að nýta sér þetta skemmtilega tækifæri til að leika sér með börnunum sínum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica