Fyrsta grafan komin á staðinn
Byrjað er að mæla og setja niður stikur á svæðinu þar sem göngin í Almannaskarð koma og fyrsta grafan er komin á staðinn. Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að komið verði með vinnubúðirnar öðru hvoru megin við helgina og hann á von á að eitthvað verði byrjað að grafa í næstu viku. Gamalt máltæki segir ,,hálfnað er verk þá hafið er”.
Í sumar verður farið að huga að undirbúningi fyrir byggingu nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót og finna nýtt brúarstæði en um það eru skiptar skoðanir meðal heimamanna. Reynir segir að fyrsta fjárveiting til framkvæmdanna verði árið 2006 en hvort verkið verður boðið út þá er ekki vitað ennþá.
Helstu framkvæmdir hjá Vegagerðinni núna er hækkun varnargarða við Kotá í Öræfum og einnig verða settir þar nýir varnargarðar og vegurinn við brúna hækkaður





Skrifa athugasemd