Mars
Bátar við Krosseyjarbryggju
Bátar við Krosseyjarbryggju

26.03.2004 Mars

Nýtt stálþil við Krosseyjarbryggju

Framkvæmdir við nýtt stálþil við Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn mun væntanlega hefjast í júní n.k. og þarf verkinu að vera lokið áður en síldarvertíð byrjar í september. Stálþil verður rekið niður utan við það sem fyrir er og með tilkomu þess verður viðlegudýpi átta metrar í stað sex metra eins og nú er. Leitað var tilboða frá efnissölum stálþils og stálþilsfestinga og bárust fjögur tilboð. Bæjarráð ákvað að ganga til samninga samkvæmt tilboði við G.Arason ehf/Arcelor sem er uppá kr. 18.587.702. Verkið verður boðið út í næsta mánuði.

Á næstunni verður byrjað á uppsátri fyrir smábátana og verður það sunnan við smábátahöfnina á kantinum þar sem olíutankarnir eru.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica