Olís opnar nýja stöð
Í dag opnar ný og glæsileg Olísstöð á Hornafirði. Nýja stöðin er stór og rúmgóð og uppfyllir allar kröfur nútímans. Í nýju stöðinni verður mjög aukið við vöruúrval frá því sem áður var og bætast inn margir nýir vöruflokkar. Haukur Sveinbjörnsson rekstrarstjóri hjá Olís á Hornafirði sagði að þetta væri mikill munur frá gamla kofanum sem þjónað hefur Hornfirðingum lengi, enn hann heyrir nú brátt sögunni til og mun hverfa í þessari viku. Haukur sagði að lokafrágangur á öllu utanhúss þ.e.a.s. plani, dælubúnaði og þvottaplani yrði látið bíða til næsta vetrar en þá yrði stöðin og umhverfið endanlega klárað.
Stöðin verður formlega opnuð 22. apríl sagði Haukur og bætti við “Þá verður mikið fjör”





Skrifa athugasemd