Lilja Rós kjörin Netstúlka Símans
Um s.l. helgi fór fram kjör á fegurðardrottningu Austurlands. Ein Hornfirsk blómarós tók þátt í keppninni að þessu sinni, Lilja Rós Aðalsteinsdóttir. Ekki hreppti okkar stúlka titilinn Ungfrú Austurland þó svo að hún hefði verið vel að þeim titli komin sem og allar hinar stelpurnar. En Lilja Rós vann aftur á móti titilinn “Netstúlka Símans” en þar var hún valin í kosningu, sem eins og nafnið gefur til kynna fór fram á netinu. Verðlaunin fyrir nafnbótina “Netstúlka Símans” voru glæsilegur gsm sími frá Símanum. Til hamingju með árangurinn Lilja Rós.
Fegurðardrottning Austurlands var kjörin Jónína Brá Árnadóttir frá Egilsstöðum og var hún jafnframt kjörin Ljósmyndafyrirsæta Austurlands og Oroblu stúlka Dekurstofunnar.





Skrifa athugasemd