Apríl
Sindraskvísur komnar að víkingum og sjómönnum
Sindraskvísur komnar að víkingum og sjómönnum

02.04.2004 Apríl

Frestað hjá meistaraflokki kvenna

Meistaraflokkur kvenna hjá Sindra átti að leika sinn fyrsta leik í Deildarbikarnum á morgun laugardag, við Keflavík. Leiknum hefur hins vegar verið frestað til 9. maí, þannig að fyrsti leikur hjá Sindraskvísum verður laugardaginn 16. apríl við hið svokallaða norðurbandalag, Þór/KA/KS. Fyrsti leikur hjá stelpunum á Íslandsmótinu er settur á þriðjudaginn 25. maí gegn Fjarðarbyggð á Eskifjarðarvelli. Meistaraflokkur karla lék um síðustu helgi við ÍH í deildarbikarnum og máttu okkar menn lúta í gras 3-2. Markaskorarar hjá Sindra voru þeir Guðjón Óskarsson og Gísli Freyr Brynjarsson.

Hornfirskir sparkspekingar eru auðvitað farnir að spá í möguleika Sindra á Íslandsmótinu og sitt sýnist hverjum. Almennt eru menn þó á því að komandi sumar geti orðið strembið fyrir Sindra og væntingum er því stillt frekar í hóf. Margir ungir og óreyndir leikmenn koma inn í liðin og við slíkar breytingar þarf að sína biðlund og góðan stuðning hvernig sem gengur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica