Páskarnir á næsta leyti
Nú líður að einni af stóru umferðarhelgum ársins. Það hefur jú ekki farið framhjá neinum að páskarnir eru á næsta leyti og leggjast þá margir í ferðalög til að hitta ættingja og vini um hátíðarnar. Sumarfæri er þessa dagana á flestum vegum landsins og ætti færðin því ekki að spilla ferðagleðinni. Þeir sem ætla sér austur á land geta óhikað ekið Öxi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Fyrir skíðaglaða Hornfirðinga þá er lítið um að vera í Oddskarði, engin snjór og ástandið í fjallinu eins og í byrjun september að sögn heimamanna. Í Stafdal í Seyðisfirði er ástandið lítið skárra og litlar líkur á að skíðabrekkurnar verði opnar þar um páskana.
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri eða breytilegri átt á föstudaginn langa, en suðlægari og rigning eða slydda á laugardag. Hiti 2 til 8 stig, en í kringum frostmark norðantil. Á páskadag, norðlæg átt, kólnandi og víða él eða skúrir, en suðlæg átt, hlýnandi og vætusamt á annan í páskum og á þriðjudag.
![Jökulsárlón, vinsæll ferðamannastaður [© ebe]](/media/landslag/mid/Jokulsarlon220903.jpg)




Skrifa athugasemd