Apríl
Vanda í Hafnarskóla í morgun
Vanda í Hafnarskóla í morgun

14.04.2004 Apríl

Vanda Sigurgeirsdóttir heimsækir Hornfirska æsku

Í kvöld mun Vanda Sigurgeirsdóttir mæta á almennan foreldrafund í Hafnarskóla. Þar mun hún ræða um gildi íþrótta sem forvarnastarfs, hvernig stuðla megi að sem mestri þátttöku í íþróttum, mismun á þjálfun eftir kynjum, keppni í íþróttum og fleira. Það eru Æskulýðs- og tómstundaráð, Sindri og Grunnskólar Hornafjarðar sem hafa veg og vanda að heimsókninni. Foreldrafundurinn er bara einn liður í þessari heimsókn því Vanda mun m.a hitta alla nemendur í Hafnar- og Heppuskóla í þessari viku, auk þess sem hún heldur fund með öllum þjálfurum og mætir á nokkrar æfingar í kvennaboltanum.

Vanda Sigurgeirsdóttir er eins og flestum er kunnugt landsþekkt knattspyrnukona, hún hefur leikið 37 A-landsleiki fyrir Íslands hönd, auk þess sem hún hefur getið sér gott orð í þjálfun, þar sem hún hefur m.a. þjálfað öll landslið Íslands í kvennaknattspyrnu. Um þessar mundir starfar hún í Kennaraháskóla Íslands þar sem hún er yfirmaður tómstundarbrautar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica