Menningin blómstrar
Langar þig til að hitta mann og annan næstu dagana og njóta um leið menningar af ýmsum toga? Þá er Hornafjörður staðurinn. Á morgun miðvikudag bíður Kvennakór Hornafjarðar upp á opna æfingu í Nýheimum kl. 20:00, en það er síðasta æfing kórsins fyrir Danmerkurferð. Allur aðgangseyrir mun renna til flygilkaupa í Nýheimum. Á sumardaginn fyrsta verða slysavarnakonur með kaffisölu milli kl. 15:00 og 17:00 í húsi félagsins og lofa þær því að borðin muni svigna undan kræsingum eins og ævinlega. Að kvöldi sumardagsins fyrsta mun síðan Karlakórinn Jökull halda sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir verða haldnir í Hafnarkirkju og hefjast kl. 20:00. Tónleikarnir verða síðan endurteknir á sama stað á sama tíma á föstudaginn.
Á laugardaginn kl. 17:00 verða tónleikar Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu haldnir í Nýheimum og munu þar koma fram nemendur á efri stigum tónlistarnáms.
“Frá Pakkhúsinu lá leiðin” er heiti á sýningu á fyrstu verkum Svavars Guðnasonar sem haldin verður í Pakkhúsinu á laugardag og sunnudag og mun Inga Jónsdóttir, myndlistarmaður bjóða upp á umræðu um list Svavars. Sýningin verður opin kl. 14:00 – 17:00 báða dagana.
Það er því engin ástæða til að láta sér leiðast á Hornafirði, svo mikið er víst.





Skrifa athugasemd