Hvar er Skeiðará!
Það er óvenjulegt að geta gengið þurrum fótum í farvegi Skeiðarár, en það er hægt núna. Vatnsrennsli í Skeiðará hefur verið óvenjulega lítið frá aprílbyrjun og þar sem útfall hefur verið í Skeiðará er núna hægt að fara um árfarveginn á skóm segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli. Ragnar skoðaði aðstæður við ána í gær og sagði það sérkennilega tilfinningu að standa í miðjum farvegi Skeiðarár og ekkert vatn þar sem straumhörð jökuláin rann. Morsá rennur undir Skeiðarárbrú austanmegin og Skeiðará, lítil kvísl, rennur undir brúna að vestanverðu. Vesturkvíslin kemur úr nýju útfalli og er rennsli hennar mjög lítið og ekkert í líkingu við það sem venjulega er í Skeiðará.
Ragnar segir að óvenju mikið vatn sé í Sandgýjukvísl og eins í Núpsvötnum og hefur hann haft samband við Orkustofnun um þessar breytingar á rennsli jökulánna á Skeiðarársandi. Myndina tók Ragnar Frank í gær í árfarveginum við Jökulfell sem liggur að útfalli Skeiðarár.





Skrifa athugasemd