Setja saman tíu smáhýsi til viðbótar
Náttbóls-félagar hafa ekki slegið slöku við síðustu dagana við húsasmíðarnar og segja að stuttur tími sé til stefnu, ferðatíminn alveg að byrja. Þeir eru að setja saman tíu smáhýsi sem sett verða niður á tjaldsvæðinu þar sem þeir eiga fimm hús sem tekin voru í notkun í fyrra sumar og eitt að auki sem ekki var gengið frá þá.
Gerð hefur verið ný tillaga um deiliskipulag á tjaldsvæðinu og bæjarráð samþykkt að hún verði auglýst. Jón Stefán Friðriksson, einn Náttbóls eigenda, segir að svæðin sem til greina komi fyrir húsin séu, uppi í hólnum fyrir ofan húsin sem komin eru eða við hliðina á þeim í átt að Fiskhólnum.
Þriðji staðurinn er á Syðri Klettum sem einnig eru kallaðir Hrossabithagahólar. Deiliskipulagið þarf að vera til kynningar í fjórar vikur áður en endanleg ákvörðun verður tekin um staðsetningu húsanna.





Skrifa athugasemd