Námsferð í Öræfin
Fyrir tveimur árum var farið með alla nemendur Hafnarskóla í tvær námsferðir. 6. og 7. bekkur fóru í Öræfin en 4. og 5. bekkur í Suðursveit. Þessar ferðir þóttu takast með eindæmum vel og var ákveðið að endurtaka þær annað hvert ár þannig að allir nemendur kæmust á báða staði á meðan þeir væru í skólanum. Ferðirnar eru kallaðar námsferðir því í þeim er lögð áhersla á umhverfistengt nám auk þess að eiga góðar stundir saman. Á morgun er komið að námsferð fyrir 6. og 7. bekk Hafnarskóla og verður haldið á vit ævintýranna í Öræfin. Gist verður eina nótt í Hofgarði og komið heim úr ferðinni seinnipartinn á miðvikudag.
Í námsferðinni munu krakkarnir fara í heimsókn í Skaftafell þar sem þau munu læra að mæla hæð trjáa og hvernig vatnshraði er mældur. Farið verður í gönguferð, Skaftafellsstofa skoðuð og hver veit nema krakkarnir finni aftur útfall Skeiðarár. Ekki verður þessi ferð eintóm vinna og munu krakkarnir halda fótboltamót og kvöldvöku ásamt fleiru.
Mánudaginn 3. maí er síðan stefnt að námsferð í Suðursveit með 4. og 5. bekk og verður gist eina nótt í Hrollaugsstöðum. Í þeirri ferð verða einnig gerðar ýmsar athuganir, farið í göngu- og skoðunarferðir og siglt á Jökulsárlóni. Og auðvitað munu krakkarnir halda kvöldvöku og skemmta sér aðeins í leiðinni. Það eru því spennandi dagar framundan hjá krökkunum í Hafnarskóla.





Skrifa athugasemd