Komu heim með 26 verðlaunapeninga.
Á sumardaginn fyrsta fóru 15 krakkar frá sund-deild Sindra á sundmót sem Ungmennafélagið Neisti á Djúpavogi stóð fyrir í sinni glæsilegu sundlaug og bauð til sín keppendum frá Höfn og einnig voru þar líka krakkar frá Fáskrúðsfirði. Frá því nýja sundlaugin var tekin í notkun á Djúpavogi hefur mikil breyting átt sér stað á sundmenningunni þar. Sundæfingar eru þar reglulega og krakkar þaðan eru dugleg að taka þátt í sundmótum og standa fyrir sundviðburðum. Það er stutt frá því að segja að Hornfirsku börnin stóðu sig með sóma og komu með 26 verðlaunapeninga með sér heim
Ásdís Ögmundsdóttir varð í 2.sæti í þremur greinum,100 m skriðsundi, 50 m baksundi og 100 m bringusundi. Örn Þór Björnsson varð í 1. sæti í sömu greinum í sínum flokki. Bryndís Rós Sigurjónsdóttir varð í 2. sæti í 100 m bringusundi. Iðunn Tara Ásgrímsdóttir varð í 2. sæti í 100 m bringu- og 100 m skriðsundi og í 3. sæti í 50 m baksundi. Karítas Björt Óskarsdóttir varð í 3. sæti í 100 m bringusundi. Andri Már Ágústsson varð 1. sæti í 100 m bringusundi. Sandra Rán Ásgrímsdóttir varð í 1. sæti í 100 m bringusundi og 2. sæti í 50 m bak- og 100 m skriðsundi. Bragi Fannar Þorsteinsson varð í 2. sæti í 50 m bak- og 100 m skriðsundi og 3. sæti í 100 m bringusundi.
Auk þessa kepptu tvær boðsundsveitir frá Sindra, stelpu-og strákasveit og urðu þær báðar í 2. sæti. Nú fer vetrarstarfi sund-deildarinnar að ljúka hvað og hverju og sumarstarfið tekur við. Áður en vetri lýkur stefnir sund-deildin að því að bjóða foreldrum leikskólabarna í sund með börnin sín. Á staðnum verða íþróttakennarar sem gefa leiðbeiningar um hentugar æfingar fyrir börn auk þess að kynna almenna hollustu sundíþróttarinnar bæði fyrir börn og fullorðna. Í sumar er líka stefnt að því að bjóða upp á sundnámskeið fyrir börn sem hefja skólagöngu í haust.
Guðbjörg Guðlaugsdóttir hefur verið þjálfari sund-deildarinnar í vetur en er því miður að hverfa til annarra starfa. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu nýs þjálfara.





Skrifa athugasemd