Apríl
Skinney-Þinganes
Skinney-Þinganes

30.04.2004 Apríl

Skinney-Þinganes skilaði 480 milljóna króna hagnaði árið 2003

Samkvæmt ársreikningi Skinneyjar-Þinganess hf. fyrir árið 2003 skilaði fyrirtækið 480 milljóna króna hagnaði eftir skatta á árinu, en hagnaður var 673 milljónir árið 2002. Hagnaður fyrir afskriftir var 679 milljónir sem svarar til 27,90% af rekstrartekjum, en var 28,66% á árinu 2002. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 8 milljónir í stað 307 milljóna árið áður. Rekstrartekjur á árinu voru 2.432 milljónir á móti 2.572 milljónum árið 2002. Veltufé frá rekstri lækkar á milli ára úr 699 milljónum í 539 milljónir, og er 22,16% af tekjum. Eiginfjárhlutfall hækkar úr 25,65% í 32,64% en eigið fé félagsins jókst á sama tíma úr 1.661 milljónum í 2.165 milljónir.

Niðurstaða efnahagsreiknings er 6.632 milljónir en var 6.475 milljónir árið 2002, skuldir og skuldbindingar eru 4.467 milljónir og nettóskuldir 3.968 milljónir. Aðalfundur félagsins verður haldinn 14. maí 2004. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins sth.is.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica