Sól, sól skín á mig
Ekki hefur sólin leikið við Hornfirðinga í dag, en auðvitað eru menn ekki að gera neitt veður út af því og taka þessu með Skaftfellskri hógværð, vitandi það að sólin er aldrei langt í burtu þegar Hornafjörður er annars vegar. Hitinn hefur verið ágætur eða um 10° og rigning eða súld mestanpart dags. Veðurútlit næstu dagana er kannski ekki eins og flestir hefðu óskað sér, en það er nú einu sinni þannig að ekki geta allar óskir mannanna ræst og sem betur fer á það sama við um veðurspár, þær ganga ekki alltaf eftir. Á morgun er gert ráð fyrir vestan 8 – 13 m/s og léttskýjuðu en heldur hægari er líður á daginn og hiti á bilinu 8 – 13 stig. Ekki alslæmt og fánar ættu að blakta vel á alþjóðabaráttudegi verkafólks.
Veðurhorfur í næstu viku eru samkvæmt spá Veðurstofunnar eftirfarandi: Á sunnudag norðan 10-15 m/s og slydda eða snjókoma norðanlands, en léttskýjað sunnanlands. Fremur kalt. Hægari vindur og bjart veður á mánudag, en él norðaustanlands. Víða léttskýjað á þriðjudag og heldur hlýnandi, en vætusamt á miðvikudag og fimmtudag.





Skrifa athugasemd