Maí
Myndasafn 567
Myndasafn 567

01.05.2004 Maí

Vel lukkaður hjóladagur

Í dag var haldinn hjóladagur á Höfn og var það Slysavarnadeildin Framtíðin sem stóð fyrir honum með aðstoð félaga úr Björgunarfélagi Hornafjarðar, Kiwanis og Lögreglunni á Höfn. Mikið fjölmenni mætti á staðinn og eftir að skoðun hafði farið fram á íþróttavellinum við Heppuskóla var haldið í hóp eftir Hafnarbrautinni og sem leið lá út í Slysavarnarhús þar sem tekið var á móti krökkunum með Svala og nýbökuðum kleinum. Allir krakkarnir fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna í hjóladeginum ásamt pennaveski frá Sparisjóð Hornafjarðar.

Sjá myndasafn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica