Námsferð hjá 4. og 5. bekk Hafnarskóla
Á mánudag og þriðjudag fóru nemendur í 4. og 5. bekk í námsferð í Suðursveit. Gist var í Hrollaugsstöðum og þar var einnig haldin kvöldvaka og fótboltamót en að öðru leyti var dvalið í vestari hluta Suðursveitar, fyrir sunnan sand eins og Suðursveitungar kalla það. Fyrri daginn var haldið vestur að Felli og gengið þaðan inn í Þröng og alveg upp að Breiðarmerkurjökli þar sem nemendur fengu allir að fara upp á jökulinn. Skoðaður var íshellir undir jöklinum og uppi á jöklinum var svelgur sem hægt var að horfa ofan í. Á leiðinni var náttúrulífið skoðað og spáð í bergtegundir og jarðlög. Nemendur söfnuðu 40 jurtategundum á þessari leið sem við flest teljum fremur gróðursnauða.
Þetta var heljarmikil ganga og tók ferðin 4-5 klukkustundir. Að henni lokinni var farið að Jökulsárlóni þar sem nemendur og starfsfólk nutu náttúrufegurðarinnar, fylgdust með sel og skúm ásamt öllu öðru sem staðurinn hefur upp á að bjóða.
Á þriðjudaginn hófst dagskráin á Breiðarbólstaðartorfunni. Nemendur fóru í ratleikinn fyrir ofan Hala, skoðuðu fjósið og fiskeldið þar á bæ og fjárhúsin á Gerði þar sem sauðburður er hafinn. Að því loknu var farið inn í Staðarfjall sem er inn af Steinadalnum. Þar var grillað en einnig skoðuðu börnin Rannveigarhelli og léku sér í skógræktargirðingunni og Hellisánni þar sem nokkrir fóru á sund. Ferðinni lauk svo um kl 16:00 þegar haldið var heim á leið með rútum.
Mestan hluta ferðarinnar voru Fjölnir Torfason og Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala leiðsögumenn hópsins auk þess sem þau sýndu nemendum bleikjueldið hjá sér. Fyrir þetta kunnum við þeim ómældar þakkir því án þeirra hefði ferðin ekki verið svipur hjá sjón. Það er ómetanlegt þegar heimafólk getur gefið sér tíma til að spjalla og segja frá sínum heimaslóðum. Einnig þökkum við Steinþóri og Ólöfu á Hala og Þorbergi og Torfhildi á Gerði fyrir að hafa leyft okkur að kynnast búskapnum.
Þetta er í annað skiptið sem farið er í svona námsferðir í Hafnarskóla. Við urðum áþreifanlega vör við það núna að ákveðin hefð er að myndast í kringum ferðirnar og mikil tilhlökkun ríkti fyrir þær og í báðum ferðunum var almenn ánægja bæði nemenda og starfsmanna. Með því að fara í svona ferðir annað hvert ár komast allir nemendur skólans á báða þessa staði. Þannig kynnast þau sýslunni sinni betur og vonandi eiga þessar ferðir eftir að skila sér í betri þekkingu á sýslunni og því sem landið hefur upp á að bjóða. Það er mikilvægt að standa vörð um þekkingu okkar á eigin sýslu því ef við getum ekki kynnt hana fyrir gestum okkar, hver getur það þá? Samstarf skólanna og þeirra sem standa fyrir ferðaþjónustu í sýslunni getur því verið mikilvægur hlekkur í atvinnulífi hér um slóðir.





Skrifa athugasemd