Maí
Kemur Sir Sean Connery til Hornafjarðar?
Kemur Sir Sean Connery til Hornafjarðar?

06.05.2004 Maí

Sean Connery eða Anthony Hopkins í Bjólfskviðu?

Leitað er nú að súperstjörnu í hlutverk kóngsins í ,, Beowulf og Grendel” eða Bjólfskviðu, sem verið er að undirbúa tökur á og verður að mestu tekin í Hornafirði. Nöfn eins og Sean Connery og Anthony Hopkins hafa verið nefnd í því sambandi. Talið er líklegt að þessar stórstjörnur hafi áhuga á koma til Íslands og þar sem hlutverkið er ekki stórt og viðkomandi þyrfti aðeins að dvelja tvær vikur á tökustað, geti þetta hentað ágætlega. Ef þetta gengur eftir þá eykst verðmæti myndarinnar verulega. Í aðalhlutverkið er verið að reyna að fá upprennandi unga stjörnu en ekki fékkst uppgefið hver hún er.

Leikstjóri myndarinnar verður Sturla Gunnarsson. Sturla er fæddur á Íslandi af íslenskum foreldrum en ólst upp í Vanvouver í Kanada. Hann er mjög virtur leikstjóri í Kanada og hafa bíómyndir hans, fræðslumyndir og sjónvarpsþættir unnið til fjölda verðlauna og hefur hann m.a. verið tilnefndur til óskarsverðlauna. Síðasta bíómynd hans var Rare Birds (2001) með óskarsverðlaunahafanum William Hurt í aðalhlutverki. sú mynd fékk mjög góða dóma og vann til margra verðlauna.

Ástæða fyrir því að þetta verkefni er áhugavert fyrir Íslendinga er að kvikmyndina á að mynda á Íslandi í Skaftafellssýslum. Samkvæmt upplýsingum frá Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum er gert ráð fyrir skv.fjárhagsáætlun myndarinnar að 1/3 hluti kostnaðar falli til á Íslandi eða um 250 millj.ISK. Gert er ráð fyrir að undirbúningur hefjist um leið og fjármögnun er tryggð og að myndin verði tekin upp í sumar og haust. Mjög mikill undirbúningur er við gerð myndarinnar og má þar nefna að reisa þarf heilt víkingaþorp.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica