Hornfirðingar fyllast stolti
Frá Hafnarskóla
Í dag var hinn árlegi hreinsunardagur hjá okkur í skólanum. Farið var vítt og breitt um bæinn og mikið rusl tínt. Í vetur hefur það fokið í hrúgur og tiltölulega auðvelt var að fylla hátt í 100 poka af rusli. Opin svæði eins og Óslandið og Álaugareyjan voru vandlega hreinsuð enda ekki líklegt að nokkur þori þar um eftir að krían fer að verpa. Að hreinsun lokinni voru grillaðar pulsur í Hafnarskóla með aðstoð foreldrafélagsins.
Eflaust fyllast allir Hafnarbúar stolti þegar þeir horfa á hreinan og snyrtilegan bæinn og vonandi leggjast allir á eitt við að halda honum hreinum og snyrtilegum í sumar.
Þegar bæjarvinnan byrjar þá ættum við líka að hvetja börnin okkar sem þar vinna til dáða og hrósa þeim fyrir þau störf sem þar eru unnin. Því miður vill það stundum brenna við að fólk lítur niður á bæjarvinnuna og finnist að börnin þar vinni lítið sem ekkert. En kannski eru það viðhorf okkar sjálfra til bæjarvinnunnar sem þessu ráða. Við erum fólkið í bænum og bærinn okkar lítur út eins og við viljum að hann líti út. Ef við viljum að hann líti vel út þá leggjum við öll eitthvað á okkur svo það megi verða. Ekki bara hinir.
Höfum bæinn okkar þannig að við getum öll verið stolt af því sýna hann gestum og gangandi.
Þórgunnur Torfadóttir




Skrifa athugasemd