Síðustu leikir Sindra í Deildarbikarnum
Um helgina lék meistaraflokkur kvenna hjá Sindra síðustu leikina í Deildarbikarnum. Á laugardaginn kepptu þær við Fjölni í Egilshöll og lauk leiknum með sigri þeirra Fjölniskvenna 11 – 0. Á sunnudaginn kepptu þær svo við Keflavík og tapaðist sá leikur 7 – 0. Hópurinn hjá Sindra var þunn skipaður eins og í undanförnum leikjum og var á mörkunum að hægt væra að stilla upp fullskipuðu liði. Næsta verkefni hjá stelpunum er 25. maí en þá mæta þær Fjarðabyggð á Eskifjarðarvelli í fyrsta leik Íslandsmótsins í 1. deild kvenna C riðli. Fyrsti heimaleikurinn verðu síðan þann 6. júní gegn Einherja.
Meistaraflokkur karla lék æfingaleik á föstudaginn gegn Neista frá Djúpavogi og lauk leiknum með sigri okkar manna 1 – 0 í tilþrifa litlum leik. Fyrsti alvöruleikur sumarsins hjá strákunum verður í bikarkeppninni gegn Neista 18. maí og verður leikið á Djúpavogi. Fyrsti heimaleikurinn verður gegn Huginn og verður á Sindravöllum 4. júní.





Skrifa athugasemd