Maí
Mynd 102
Úr myndasafni Hafnarskóla
Úr myndasafni Hafnarskóla

13.05.2004 Maí

Mikil frjósemi á Smyrlabjörgum

Annasamur tími er framundan hjá sauðfjárbændum þar sem sauðburður er að komast á stað og ekki er annað að heyra en það sé gott hljóð í Hornfirskum bændum. Sigurbjörn Karlsson á Smyrlabjörgum í Suðursveit er með 350 kindur á vetrarfóðrum og þar er sauðburður rétt að byrja. Hann segir að þetta líti vel út þar sem mikill gróður sé kominn, mikið meiri en venja er á þessum árstíma, það þyrfti bara að hlýna svolítið meira og lægja.vindgustinn sem verið hefur undanfarna daga.

Orð hefur farið af mikilli frjósemi hjá ánum á Smyrlabjörgum og algengt að ærnar hafi verið þrí- og fjórlembdar og einstaka sinnum komið fimm lömb. Það var ekki eins mikil frjósemi í fyrra eins og áður en þá voru til jafnaðar tvö fædd lömb á kind, best að hafa þetta bara jafnt og tvö lömb er gott, segir Sigurbjörn, en hann á von á að nú sæki í fyrra horf og margar ær verði með þrjú eða fjögur lömb.
Sauðburður var sá tími sem börn og unglingar í sveitinni hlökkuðu mikið til og tóku fullan þátt í en nú er öldin önnur og núna á þessum annatíma eru börnin í skóla og losna ekki úr honum fyrr en sauðburði er að ljúka. Sigurbjörn segir að það sé fáliðað hjá sér við sauðburðinn þar sem krakkarnir séu í skóla og þó að þau reyni að skjótast í þetta þegar þau koma heim missi þau að mestu af þessum skemmtilega tíma sem sauðburðurinn er. Þetta er mikill og góður skóli fyrir krakka að fá að taka þátt í sauðburðinum og þau myndu ekki læra minna á því en í þessari framlengingu sem orðin er á skólunum segir Sigurbjörn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica