Skólaferðalag Nesjaskóla
Nemendur 3. bekkjar Nesjaskóla komu í dag heim úr skólaferðalagi sínu í Öræfin. Á leiðinni þangað var komið við í kirkjunum í Nesjum, á Mýrum og í Suðursveit. Sigrún G. Björnsdóttir tók á móti hópnum í Suðursveitinni og fræddi hann um Kálfafellstaðarkirkju og síðan var áð við Hrollaugsstaði í blíðskapar veðri og kíkt í nestisboxin. Frá Hrollaugsstöðum var haldið í Skaftafell þar sem gengið var að Svartafossi, hádegisnesti snætt og farið í frískandi fótabað. Nemendur skoðuðu Skafafellsstofu og brúarleifarnar og upplýsingaskiltin um Skeiðarárhlaupið 1996 niðri á Skeiðarársandi.
Frá Skeiðarársandi var ekið í Hofgarð þar sem dvalið var við útileiki fram að kvöldmat. Krakkarnir voru með skemmtilega kvöldvöku og vel fyrir miðnætti voru þreyttir og sælir ferðalangar skriðnir í poka og sofnaðir. Að loknum morgunverði í morgun gegnu nemendur að Hofskirkju og skoðuðu hana, héldu síðan sem leið lá heim með viðkomu við Jökulsárlón. Ferðin tókst í alla staði vel og geta nemendur í verðandi 3. bekk og kennarar byrjað að láta sér hlakka til næstu Öræfaferðar.
Sjá myndasafn





Skrifa athugasemd