En er ekki Jökulsárlónið upp á jöklinum?
Um síðustu helgi komu fimmtán bandarískir ferðasöluaðilar í kynnisferð til Hornafjarðar. Hópurinn kom með bíl frá Egilsstöðum og var farið Öxi en við það seinkaði ferð þeirra mikið, ekki vegna ófærðar heldur var það náttúrufegurðin sem tafði för þeirra, því mikið þurfti að mynda. Á Hótel Höfn tók Guðrún Ingimundardóttir formaður Ferðamálafélags A-Skaft á móti þeim. Guðrún tók því vel ,eins og hennar er von og vísa, að segja frá þessari heimsókn sem hefur mikið gildi fyrir ferðaþjónustuaðila hér. Þegar sölumennirnir höfðu gætt sér á sjávarréttasúpu o.fl. sýndi Guðrún þeim bæinn og kynnti þá þjónustu sem hér er til staðar.
Við fórum og skoðuðu kríurnar í Óslandinu sem þeir höfðu mikinn áhuga á segir Guðrún. Því næst var haldið að Smyrlabjörgum. Þar sem þetta var allt fólk sem er að selja ferðir hingað var vel fylgst með öllu sem fyrir augu bar og þegar komið var að afleggjaranum upp á Skálafellsjökul spyr einn maðurinn ,, förum við ekki þarna upp? nei sagði ég, við förum á Jökulsárlónið, já en Jökulsárlónið er uppi á jöklinum”. Hann var ekki sáttur við að lónið væri ekki uppi á jöklinum, hann sem var búinn að selja ferðir hingað í 30 ár og segja öllum að þeir verði að fara uppá Vatnajökul til að komast að Jökulsárlóni og að það þurfi jeppa til að komast þangað.
Á Smyrlabjörgum fórum við í fjárhúsin til Sigurbjörns og eitt af því sem spurt var um var hvort féð væri haft inni svo úlfarnir færu ekki í það. Þegar búið var að skoða það sem ferðaþjónustan þar á bæ hefur uppá að bjóða höfðu þeir að orði að þeir hefðu aldrei látið sér detta í hug að til væri svona mikil ferðaþjónusta á bóndabæ á Íslandi og þeir voru alveg rosalega hrifnir segir Guðrún. Þegar komið var að Jökulsárlóni var Einar Björn tilbúinn með hjólabát sem við sigldum á um lónið sem vakti mikla hrifningu og líka að skoða svæðið þar sem James Bond myndin var tekin að hluta. Eftir siglinguna var farið í þjónustuskálann þar sem beið okkar sá þjóðlegi matur harðfiskur, smjör og brennivín, í boði Hótel Hafnar.
Við Jökulsá skildu leiðir Guðrúnar og bandarísku ferðasalanna og héldu þeir í Freysnes og Skaftafell þar sem Anna María og Ragnar Frank tóku við að kynna þeim það sem Öræfasveit hefur uppá að bjóða.
Ekki er nokkur vafi um að svona heimsóknir hafa mikið að segja bæði fyrir ferðaþjónustu hér í sýslunni og líka fyrir þá sem eru að selja ferðir hingað.





Skrifa athugasemd