Maí
Íþróttahúsið við Heppuskóla
Íþróttahúsið við Heppuskóla
Íþróttahúsið við Heppuskóla

18.05.2004 Maí

Sparkvöllur á Hornafjörð

KSÍ hefur úthlutað 60 sparkvöllum víðsvegar um land en alls bárust 105 umsóknir frá 59 sveitarfélögum. KSÍ útvegar grasið á vellina sveitarfélögunum að kostnaðarlausu en það er síðan í höndum hvers sveitarfélags að sjá um byggingu og frágang vallanna. Hjá KSÍ vonast menn til að geta úthlutað fleiri völlum, en það veltur á samningi við framleiðanda og auknu fjármagni til verkefnisins. Að sögn Alberts Eymundssonar bæjarstjóra vonast menn til að geta hafið framkvæmdir við völlinn í sumar og ætti hann þá að verða tilbúin með haustinu. Völlurinn verður staðsettur við hliðina á íþróttahúsinu við Heppuskóla og ekki er nokkur vafi á að hann á eftir að nýtast vel bæði til æfinga og leikja.

Á Austurlandi úthlutaði KSÍ sjö völlum á eftirtalda staði: Djúpavog, Egilsstaði, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð, Neskaupsstað, Seyðisfjörð og Vopnafjörð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica