Maí
Ný Esso stöð í byggingu
Ný Esso stöð í byggingu
Ný Esso stöð í byggingu

18.05.2004 Maí

Styttist í nýja Esso stöð

Byggingu nýrrar Esso stöðvar við Vesturbraut miðar vel áfram. Húsið verður allt hið glæsilegasta en það leysir af hólmi gamla byggingu sem þjónaði ekki lengur kröfum nútímans. Heimir Örn Heiðarsson hjá HP sonum, sem verða rekstraraðili stöðvarinnar sagði að stefnt væri á opna í byrjun júní og menn vonast eftir því að formleg opnum geti farið fram 17. júní. Í nýju stöðinni verður hin hefðbundna sjoppa og þjónusta við bíleigendur en að auki verður boðið upp á dagvöru ýmiskonar og hægt verður að setjast niður og fá sér kaffi og nýbakað brauð. Í húsinu verður einnig verslun ÁTVR.

Að sögn Heimis er reiknað með að starfsmenn verði á bilinu 6 – 8 og er búið að ráða í öll störf fyrir sumarið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica