Maí
Fögur fjallasýn (Mynd:Einar Björn)
Fögur fjallasýn (Mynd:Einar Björn)
Fögur fjallasýn (Mynd:Einar Björn)

21.05.2004 Maí

Hvar er sumarið

Ekki hefur veðrið leikið við landann undanfarið og ekki lítur út fyrir stórkostlegar breytingar á veðri næstu dagana. Veðurhorfur næsta sólarhringinn gera ráð fyrir suðvestan 5-10 m/s og rigningu eða súld með hita á bilinu 6 – 10 stig. Ef litið er á veðurspá næstu viku gerir Veðurstofan ráð fyrir lítilsháttar súld norðaustanlands á sunnudag en léttskýjað sunnan- og vestanlands. Frá mánudegi til fimmtudags er gert ráð fyrir hægri suðaustlægri eða breytilegri átt, skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 7 til 16 stig, svalast úti við sjóinn.

Klukkan þrjú í dag var gefin upp 10° hiti í Akurnesi sem er ekki svo slæmt ef miðað er við Jan Mayen en þar var -2° , á Svalbarða var 5° hiti, í Tromsö 6° og í Þórshöfn í Færeyjum 9°. Hvað eru menn svo að kvarta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica