Varnargarðar við Hólmsá
Bæjarráð Hornafjarðar hefur fjallað um mál er varðar Hólmsá á Mýrum og samgönguvandamál við Suðurfjörur. Á fundinum var lagt fram bréf frá Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um gerð varnargarða austan Hólmsár neðan þjóðvegar nr.1. Þar kemur fram að lausleg kostnaðaráætlun sé um 6 millj.kr. og er farið fram á að sveitarfélagið kosti helming verksins. Halldóra B. Jónsdóttir formaður bæjarráðs segir að unnið sé að undirbúningi málsins og verið sé að senda það í allar þær nefndir í bæjarkerfinu sem þurfa að fjalla um það og samþykkja.
Um leið og búið er að fara í gegnum öll þessi formsatriði verður byrjað á verkinu. Þarna er verið að tala um að láta Hólmsá vera áfram í þeim farvegi sem hún ruddi sér til sjávar við Skinneyjarhöfða í jökulhlaupi fyrir tveim árum og rauf veginn út á fjörurnar. Halldóra segir að þessi lausn sé mun ódýrari en þær sem áður hafa komið til skoðunar og hún segist fagna þessari tillögu um lausn á landvörnum og aðgengi að Suðurfjörum og segir brýnt að verkið verði unnið sem fyrst.
Varnargarður kemur austan við Hólmsá, yfir klettaholt sem er niður með ánni og verður þetta klettaholt hluti af garðinum. Landgræðslan mun á næstu dögum leggja veg og grjótverja garð sem fór í sundur við Hólmsá í flóðinu forðum. Rannveig Einarsdótttir hjá Suðurskógum segir að strax eftir flóðin hafi verið veitt pening í þessar framkvæmdi en þær hafi dregis meðan óvíst var um hvernig útkoman með Hólmsá yrði. Grjótvörn þarf við ca. 728 m langan garð og verður grjótið fengið úr námu hjá Skálafelli, annarsstaðar verður hægt að ýta upp efni í garðinn.Niður þennan varnargarð kemur svo breiður og góður vegur út á Suðurfjörur og fært verður bílum austur að Hvanney.
Fyrir utan það að þarna opnist mikilvæg leið fyrir björgunarsveitir þurfi þær að sinna björgunarstörfum við innsiglinguna um ósinn eða við ströndina þá er þetta svæði mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna því þarna er hrein útivistarparadís, fallegir sandar og margt að sjá. Rannveig segir að með þessum aðgerðum stækki land Bakka á Mýrum um 230 hektara og land Borgar um 900 hektara þ.e.um svæði sem þarna munu gróa upp með tilkomu varnargarðanna.





Skrifa athugasemd