Átján útskrifast í reiðmennsku frá FAS
Átján nemendur í Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu útskrifuðust í gær með fyrsta stigi í reiðmennsku og ellefu þeirra tóku einnig annað stig. Reiðmennska var kennd í FAS eftir áramót og kennari var Hanný Heiler. Í fyrsta stigi eru 14 kennslustundir og 28 í öðru stigi og er námið bæði verklegt og bóklegt. Námið skiptist í fimm stig. Mikill áhugi er á reiðmennskunáminu og eru nemendurnir sem voru í skólanum í vetur frá 13 ára uppí 53 ára. Hanný segir vel koma til greina að halda áfram með þessi námskeið utan skóla í sumar ef næg þátttaka yrði. Í framhaldsskólanum fá nemendur viðurkendar einingar út á reiðmennskunámið og fimmta stigið veitir réttindi inn í Hólaskóla. Prófdómari við útskriftina var Kristín Kárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri.
Hanný segir að koma eigi 1. og 2. stigi reiðmennsku inn í grunnskólana og eins í framhaldsskólana en þessi kennsla hefur aðeins farið fram í tveim til þrem skólum á landinu í vetur. Hólaskóli er kominn með yfirumsjón með þessu námi og allt námsefni kemur frá þeim. Hanný verður með reiðnámskeið og eins sér tíma fyrir þá sem það vilja í sumar, allt eftir því hvað hentar og segir hún að mikill áhugi sé fyrir hestamennsku ekki síst hjá konum.





Skrifa athugasemd