Nemendur Hafnarskóla á ferð og flugi
Mikið hefur verið um að vera hjá nemendum Hafnarskóla undanfarið, og síðustu dagar skólaársins verið vel nýttir. 7. bekkur lagði í langferð til Vestmannaeyja s.l. mánudag og eru væntanleg heim um kl.19:00 í kvöld. Ferðin hefur gengið vel þrátt fyrir smá sjóveiki í Herjólfi og hafa krakkarnir átt ánægjulega daga. Í dag var farið í pizzuhlaðborð og sund á Selfossi og þaðan lá leiðin að Seljalandsfossi og síðan áfram í austur átt. Á mánudaginn fór 4. bekkur í ferðalag inn í Geitafell. Farið var í langan göngutúr og að honum loknum voru grillaðir hamborgarar og pylsur, farið í leiki og síðast en ekki síst vaðið í læknum. Vatnið þótti frekar kalt en börnin létu það ekki aftra sér og tóku sum sundtökin í köldu vatninu. Sama dag gróðursettu nemendur í 6. bekk Hafnarskóla rúmlega áttahundruð birkiplöntur inn í skólaskógum við Drápskletta. Eftir það fóru allir niður að höfn og fengu að róa á róðrabátum Sjómannadagsráðs.
Í gær fór svo 6. bekkur til Djúpavogs þar sem þau eyddu deginum í gönguferðir, sund og fleira í sól og blíðu. Og í dag var svo hjóladagur hjá 4. og 5. bekk og einnig fóru báðir árgangar í sund. 5. bekkur fékk að prófa róðrarbátana en toppurinn á deginum var ís sem allir fengu í Hafnarbúðinni.





Skrifa athugasemd