Golfvertíðin komin á fulla ferð
Í gær hófst hjá Golfklúbbi Hornafjarðar mótaröð sem spiluð verður næstu 6 miðvikudaga og gilda fjögur bestu skorin. Þessi mótaröð er nýjung hjá golfklúbbnum og er það Golfverslunin í Dalshrauni, Hafnarfirði sem styrkir þessa mótaröð. Alls mættu 15 kylfingar til leiks í gær, þrjár konur og tólf karlar. Um Hvítasunnuhelgina verður golfkennsla á vegum klúbbsins og er þar um einkatíma að ræða bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Kennari er hin alkunni golfsnillingur okkar Hornafirðinga Halldór Sævar Birgisson.
Næsta mót á vegum félagsins er Sparisjóðsmótið sem fer fram laugardaginn 5. júní.
Um síðustu helgi fór fram fyrsta golfmót sumarsins og mættu 15 kylfingar til leiks. Úrslit á mótinu urðu eftirfarandi:
1. Guðni Rúnar Jónsson
2. Bjarni Jónsson
3. Hákon Gunnarsson
4. Gunnar Ingi Vallgeirsson
5. Guðrún Júlía Jónsdóttir
6. Jóhannes Gestsson
Einnig voru veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 7. braut og hjá körlunum vann Bjarni Jónsson en hjá konunum Guðrún Júlía. Næstur holu á 5. braut var Hákon og fékk hann að launum glæsilegt úr.
Verlaun á mótinu voru mjög glæsileg en það var Verslunin Lónið sem gaf þau.





Skrifa athugasemd