Maí
Skólaslit í Grunnskólum Hornafjarðar
Á morgun föstudag verður Grunnskólum Hornafjarðar slitið og krakkarnir fá þar með langþráð sumarfrí. Foreldrar sem eiga börn í flestum eða öllum skólunum munu hafa næg verkefni á morgun en Grunnskóli Hornafjarðar er þrískiptur og því verða þrenn skólaslit á morgun. Nesjaskóli ríður á vaðið og verða skólaslit skólans haldin í Mánagarði kl. 10:00. Rútur munu leggja af stað frá fyrstu biðstöð kl. 9:30. Klukkan 11:30 verður síðan Hafnarskóla slitið í Hafnarkirkju og skólaslit Heppuskóla verða kl. 14:00 einnig í Hafnarkirkju.
Starfsfólk skólanna vonast til að sjá sem flesta foreldra við skólaslitin til að samgleðjast með börnum sínum og kennurum.





Skrifa athugasemd