Maí
Skúta og sportbátur heiðruðu smábátahöfnina í morgun
Skúta og sportbátur heiðruðu smábátahöfnina í morgun

28.05.2004 Maí

Verður sól og verður blíða!

Nú þegar stór ferðamannahelgi gengur í garð er ekki úr vegi að líta á það sem veðurfræðingar landsins bjóða upp á. Það er öllum ljóst að veðurfræðingarnir stjórna líðan landans frá degi til dags og sumir hafa þá bjargföstu trú að þeir hreinlega stjórni veðrinu, sem er nú kannski svolítið ýkt. Í viku byrjun litu veðurkortin vel út fyrir okkur Hornfirðinga en er líða tók á vikuna breyttust þau hægt og hægt til verri vegar. Auðvitað eru veðurfræðingar ekki óskeikulir og við skulum vona að það rigni aðeins á nóttunni og við fyrsta hanagal brjótist sólin út úr skýjunum og allir uni ánægðir við sitt. Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, 5-13 m/s og skýjað, hvassast vestantil og víða súld eða dálítil rigning síðdegis. Austan 8-13 og dálítil súld eða rigning í nótt og á morgun. Hiti 8 til 13 stig.

Veðurhorfur næstu daga. Austlæg átt og vætusamt með suðurströndinni fram á þriðjudag, annars nokkuð bjart veður og hlýtt. Hæg suðlæg eða breytileg átt og milt á miðvikudag og fimmtudag, en vætusamt sunnan- og vestanlands.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica