Maí
Pálína og Ólafur í Svínafelli við sundlaugina
Pálína og Ólafur í Svínafelli við sundlaugina

31.05.2004 Maí

Brjálað að gera í Svínafelli í Öræfum

Það er búið að vera brjálað að gera hér núna undanfarið sagði Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli í Öræfum, þegar hann var spurður frétta fyrir hvítasunnuhelgina. Svefnpokapláss í Svínafelli voru full og ætluðu flestir sem þar voru að freista þess að ganga á Hvannadalshnúk. Veðrið á laugardeginum mun þó hafa sett áætlun fjallgöngumanna úr skorðum því leiðinda veður var í austanverðri Öræfasveit og á leiðinni á Hvannadalshnúk hvasst og rigning en í Svínafelli og Skaftafelli var logn, sól og hiti.

Ólafur er að gera íbúðarhúsið á Fagurhólsmýri, sem stendur spölkorn frá versluninni, klárt fyrir svefnpokagistingu og þar verða gistipláss fyrir 17 manns.
Sundkennsla stendur yfir í sundlauginni í Svínafelli og meðan hún er verður laugin opin fyrir ferðafólk frá kl.17 til 19.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica