Ævintýra og leikjanámskeið Sindra
Fyrsta leikjanámskeið Sindra byrjaði í þessari viku og er námskeiðið það fyrsta af fimm námskeiðum sem verða í sumar. Það verða Ævintýra og leikjanámskeið og knattspyrnu- og frjálsíþróttanámskeið. Hvert Ævintýra og leikjanámskeið stendur í 2 vikur frá mánudegi til föstudags en boltanámskeiðin standa yfir í eina viku. Á Ævintýra og leikjanámskeiðunum verður farið um víðan völl t.d. farið á hestbak, í veiðiferð og í golf svo fátt eitt sé nefnt. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og byrja þau kl. 9 og standa til 12, þó er hægt að mæta kl. 8 með börn í gæslu.
Dagsetningar námskeiðanna eru sem hér segir:
1.júní - 11.júní Ævintýra og leikjanámskeið
14.júní - 25.júní Ævintýra og leikjanámskeið
5.júlí - 9.júlí Knattspyrnu og frjálsíþróttanámskeið
19.júlí - 30.júlí Ævintýra og leikjanámskeið
9.ágúst – 13.ágúst Knattspyrnu og frjálsíþróttanámskeið
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar geta haft samband við starfsmann íþróttahúss Heppuskóla.





Skrifa athugasemd