Greinagerð um úrbætur í umferðinni innanbæjar
Lögreglan á Hornafirði hefur lengi verið með tillögur og ábendingar sem hún hefur reynt að koma á framfæri um það sem betur mætti fara í umferðinni hér innanbæjar, ábendingar um umferðarmerkingar á ákveðnum stöðum og ekki síst öryggismerkingar við höfnina. Nú hefur Jóhann Hilmar Haraldsson lögreglumaður á Hornafirði tekið saman og skráð öll þau atriði sem lögreglunni finnst full ástæða til að tekin séu til meðferðar og þeim komið í framkvæmd. Við þessa greinargerð hefur Jóhann notið aðstoðar félaga sinna í lögreglunni. “Við skulum standa saman í því að gera Höfn öruggari hvað umferðina varðar” segir Jóhann í grein sinni.
Meðal þess sem fram kemur í þessari ítarlegu greinargerð eru nefndir nokkrir staðir þar sem nauðsyn væri á sjálflýsandi þverslám á beygjur og setja þyrfti vegrið þar sem akvegur liggur meðfram höfninni. Bent er á ýmsar nauðsynlegar úrbætur á hafnarsvæðinu, fjölga hraðahindrunum á tilteknum stöðum og gera gangbrautir sýnilegri með málningu og að kominn sé tími á endurnýjun umferðarmerkja, einnig þarf að endurskoða hámarkshraða á götum bæjarins. Nokkur blind gatnamót eru innan bæjarins og þar telur lögreglan að speglar gætu komið að góðum notum.
Með þessu vonast lögreglumennirnir á Höfn eftir viðbrögðum frá lögreglustjóra og bæjarfélagi og telja að með þessu megi stuðla að forvörnum og leiðbeina þeim sem ákvarðanir taka um það sem betur mætti fara í umferðinni hér á Höfn. Greinargerðin var send var til lögreglustjóra, bæjarstjóra og sjö kjörinna bæjarfulltrúa með von um úrbætur. Bæjarráð þakkaði lögreglunni fyrir góða skýrslu og vísaði henni til byggingar og skipulagsnefndar.





Skrifa athugasemd